Fara í efni
Sverrir Páll

Golf: Kvennasveit GA leikur til úrslita

Lilja Maren Jónsdóttir hefur unnið allar viðureignir sínar á mótinu til þessa. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Sveit Golfklúbbs Akureyrar (GA) í 1. deild Íslandsmótsins í sveitakeppni kvenna tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaviðureigninni um Íslandsmeistaratitilinn, sem háð verður á morgun. Karlasveitin komst ekki í undanúrslit og leikur um 5.-8. sæti í flokknum.

Kvennasveitin vann allar þrjár viðureignir sínar í riðlakeppninni og komst þar með í undanúrslitin. Í þeirri viðureign mættu þær sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og unnu 3:2 í æsispennandi leik. Andstæðingurinn í úrslitaleiknum verður sveit Golfklúbbs Mosfellsbæjar, sem hefur sömuleiðis unnið allar sínar viðureignir.

Úrslitaleikurinn hefst kl. 9:45 í fyrramálið. Fylgjast má með gangi mála í viðureigninni á þessari síðu og er staðan í leiknum uppfærð eftir hverja holu.

Karlasveitin vann eina viðureign í riðlakeppninni, tapaði einni og gerði eitt jafntefli. Liðið varð í þriðja sæti í riðlinum en efstu tvær sveitirnar fóru í undanúrslit. Sveit GA leikur því í neðri helmingnum, um 5.-8. sætið í deildinni, og er þegar búið að leika einn leik. Andstæðingurinn var Golfklúbbur Selfoss og GA tapaði þeim leik 4:1. Síðasti leikur liðsins er gegn Golfklúbbi Suðurnesja á morgun.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00