Fara í efni
Sverrir Páll

Fjarlægja ummerki um Bifreiðastöð Oddeyrar

Mynd: Þorgeir Baldursson

Áratuga veru leigubílstjóra í BSO húsinu við Strandgötu lauk í síðustu viku; sá síðasti yfirgaf staðinn og skellti í lás á fimmtudaginn, 30. apríl, því þeir höfðu húsið ekki til umráða nema til mánaðamóta. Strax í morgun var hafist handa við að fjarlægja ummerki um að þarna hafi þessi mikilvæga starfsstétt haft aðsetur og eldsneyti selt á staðnum; starfsmenn olíudreifingar dældu dreggjum úr tönkum og þeir síðan fjarlægðir.

Hálfnað var einnig verk þá hafið var við að gera húsið nafnlaust, ef svo má að orði komast. BSO - Bifreiðastöð Akureyrar hefur prýtt húsið að utan í árafjöld, svo og símanúmerið 4611010, en þær upplýsingar eru plokkaðar af og ekki líður á löngu, ef að líkum lætur, þar til húsið verður horfið af staðnum. Akureyrarbær greiðir BSO 5,5 milljónir króna skv. samningi, fyrir aðgang Slökkviliðs Akureyrar að stöðvarhúsinu til æfinga og húsið verður síðan fjarlægt.

Svæðið þar sem starfsemi BSO hefur verið telst hluti lóðarinnar Hófsbót 1 en á henni og Hofsbót 3 stendur til að byggja fjögur nokkurra hæða hús þar sem atvinnustarfsemi verður á jarðhæð en íbúðir á efri hæðum.

Mynd: Haraldur Ingólfsson

Mynd: Haraldur Ingólfsson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00