Fara í efni
Sverrir Páll

BSO húsið komið á framtíðarstaðinn

Myndir: Þorgeir Baldursson

BSO húsið, aðsetur leigubílstjóra á Akureyri til áratuga, var í kvöld flutt af lóðinni á horni Strandgötu og Glerárgötu í miðbænum að Jólagarðinum í Eyjafjarðarsveit. Húsið var fyrr í dag híft upp á vagn, eins og akureyri.net sagði frá undir kvöld, og vörubíll dró gamla timburhúsið fram í fjörð.

Lögregla var með í för vegna þess að húsið er svo breitt að stöðva þurfti aðra umferð á meðan. Ferðin gekk eins og í sögu og húsinu hefur verið komið fyrir á bílastæðinu við Jólagarðinn eins og sjá má á myndum Þorgeirs Baldurssonar. Ekki er endanlega ákveðið hvar á svæðinu húsið verður staðsett þegar starfsemi hefst í því á ný.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00