Fara í efni
Sverrir Páll

Elísa fyrst í 80 km fjallahlaupi á Ítalíu

Elísa Kristinsdóttir kemur ánægð og örþreytt í mark á laugardaginn eftir 80 kílómetra, fyrst í kvennaflokki. Mynd af Facbook-síðu hlaupsins.

Hlaupadrottningin Elísa Kristinsdóttir úr Ungmennafélagi Akureyrar (UFA) er hreint óstöðvandi þessa dagana en sl. laugardag vann hún það afrek að koma fyrst kvenna í mark í 80 km  fjallahlaupi á Ítalíu. Hún kláraði hlaupið á undir 9 klukkutímum og kom í mark á 8:59,57 klst. og var um 13 mínútum á undan næstu konu.

Lavaredo hlaupið eða La Sportiva Lavaredo Ultra Trail by UTMB, eins og það heitir fór fram í Cortina d'Ampezzo á Ítalíu. Boðið var upp á vegalengdir allt frá 10 km upp i 120 km.

Aðstæður í hlaupinu voru afar erfiðar sökum hita og af 919 hlaupurum sem lögðu af stað luku 775 keppni. Elísa endaði í 9. sæti í heildina og hafði mikla yfirburði í kvennaflokknum. Fyrr á þessu ári bar hún sigur úr býtum í 75 km fjallahlaupi á Ítalíu, auk þess að taka þátt á Evrópumótinu í utanvegahlaupum í Slóveníu í byrjun júní með íslenska landsliðinu. Þar náði Elísa stórkostlegum árangri og varð í 9. sæti í kvennaflokki.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00