Fara í efni
Sverrir Páll

Berglind bæjarstjóri, Óðinn fær bæjarráð og Gunnar Már forseti

Þetta reyndist meirihlutasvipur! Framsóknarkonan Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins horfast kankvísar í augu skömmu áður en fyrstu tölur voru birtar á laugardagskvöldið. Óðinn Svan Óðinsson oddviti L-lista er á milli þeirra. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn, verður næsti bæjarstjóri á Akureyri. Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-listans verður formaður bæjarráðs og Gunnar Már Gunnarsson, annar maður á lista Framsóknar, verður forseti bæjarstjórnar. Þetta herma heimildir akureyri.net.

Í fréttinni hér að neðan um að samningur um meirihlutastarf sé í höfn kemur fram að hann verði kynntur á föstudag. Í ljósi nýjustu tíðinda veit akureyri.net að honum verður flýtt og haldinn á morgun. 

Gunnar Már Gunnarsson, sem skipaði 2. sæti á lista Framsóknar, verður forseti bæjarstjórnar Akureyrar.

  • Fyrr í dag:

Samningur í höfn, kynntur á föstudag

Ásthildur hættir sem bæjarstjóri

Bæði Berglind Ósk og Óðinn Svan eru nýliðar í bæjarpólitíkinni.

Berglind var alþingismaður Norðausturkjördæmis frá 2021 til 2024. Hún er fædd í júlí árið 1993 og verður því 33 ára í sumar. Eiginmaður hennar er Daníel Matthíasson. Foreldrar Berglindar eru Guðmundur Stefán Sigurbjörnsson og Ásdís Loftsdóttir. 

Óðinn Svan tók þátt í stjórnmálum í fyrsta sinn þegar hann varð oddviti L-listins fyrir kosningarnar um síðustu helgi. Hann er fæddur 11. september 1989 og verður því 37 ára í haust. Kona Óðins er Heiðdís Rósa Sigurjónsdóttir. Foreldrar hans eru Óðinn Svan Geirsson og Alda Erlingsdóttir.

Báðir Framsóknarmennirnir, oddvitinn Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson voru kjörin í bæjarstjórn árið 2022.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00