Fara í efni
Sjúkrahúsið á Akureyri

Sex hópar vilja hanna nýja legudeild SAk

Ljósmynd: Þorgeir Baldursson
Á þriðja tug fyrirtækja, sem mynda sex hópa, hafa áhuga á að hanna nýja legudeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Tilboð vegna þátttöku voru opnuð  fyrir helgi.
 

Verkefnið felur í sér hönnun á 9.200 fermetra nýbyggingu ásamt lóðarhönnun og aðkomu að deiliskipulagsbreytingu. Gert er ráð fyrir að nýja byggingin verði staðsett sunnan við núverandi byggingar á lóð SAk og tengd núverandi húsnæði.

Fimm hópar verða valdir til þátttöku í útboðinu þegar forvalsnefnd hefur metið innsend gögn. Lendi niðurstaða á jöfnu mun fulltrúi sýslumanns draga út þann hóp sem ekki fær boð um að taka þátt í útboðinu, skv. upplýsingum frá Nýjum Landspítala ohf., sem sér um málið.

Þetta eru hóparnir sem hafa áhuga á að taka þátt í útboði vegna verksins:

  • Arkþing Nordic

Exa nordic

Lota ehf.

Myrra hljóðstofa

Líf byggingar
_ _ _

  • EFLA

ASK arkitektar

Ratio arkitekter
_ _ _

  • Mannvit

Arkís arkitektar
_ _ _

  • Verkís

TBL arkitektar

JCA Ltd

Brekke & Strand
_ _ _

  • VSÓ ráðgjöf

Hornsteinar arkitektar

Brunahönnun

Brekke & Strand

Niras
_ _ _

  • Teiknistofan Tröð

Teknik verkfræðistofa

TKM hönnun

Örugg verkfræðistofa

Hljóðvist