Fara í efni
Sjúkrahúsið á Akureyri

Ráðherra afhentar 2.511 undirskriftir

Það gustaði um þær Maríu Pálsdóttur og Sólveigu Pétursdóttur eftir að þær höfðu afhent Ölmu Möller heilbrigðisráðherra 2.511 undirskriftir og opið bréf um framtíð endurhæfingar á Norður- og Austurlandi.

Sólveig Pétursdóttir yfirlæknir endurhæfingar á Kristnesi og María Pálsdóttir sem rekur Hælið á Kristnesi afhentu í gær Ölmu Möller heilbrigðisráðherra undirskriftalista með 2.511 nöfnum þar sem skorað er á stjórnvöld að tryggja áframhaldandi rekstur endurhæfingardeildar á Kristnesspítala. Þá afhenti Sólveig ráðherranum einnig opið bréf um framtíð endurhæfingar á Norður- og Austurlandi.

Þær stöllur hafa farið fyrir stórum hópi velunnara Kristnesspítala sem hefur barist fyrir því að stjórnvöld bregðist við bágbornu ástandi húsakostsins og tryggi fjármagn til viðhalds og endurbóta. Guðjón Samúelsson arkitekt teiknaði Kristnesspítala og á næsta ári verður byggingin 100 ára gömul en eftir að mygla greindist þar lokaði Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) endurhæfingardeildinni. Legudeild endurhæfingar verður flutt í aðalbyggingu SAk á Akureyri og leigt verður húsnæði undir dag- og göngudeild.

Heilunarmáttur umhverfisins skiptir máli

„Við viljum árétta að þjóðin safnaði fyrir helmingi kostnaðar við bygginguna sem á sínum tíma var nauðsynleg í baráttu við berklana. Þetta er sögufrægt hús í afskaplega fallegu og heilandi umhverfi. Og það er einmitt heilunarmáttur umhverfisins sem skiptir miklu máli við endurhæfingu. Einnig safnaði almenningur og góðgerðafélög fyrir sérhannaðri endurhæfingarsundlaug á Kristnesi. Það er okkar krafa að endurhæfingin verði byggð upp á Kristnesi og ekki á Akureyri,“ segir í fréttatilkynningu frá velunnurum Kristness.

Fyrir skemmstu skipaði heilbrigðisráðherra starfshóp um framtíðarsýn varðandi fasteignir Kristnesspítala sem hefur það hlutverk að leggja mat á framtíð spítalans, sérstaklega í ljósi þeirra áskorana sem upp hafa komið vegna viðhalds og mygluskemmda í húsnæðinu. Fram kom í máli Ölmu Möller þegar hún tók við undirskriftunum í morgun að sú vinna væri í gangi og ekki væri tímabært að segja meira um það. „Við þurfum að gæta hagsmuna ríkisins og vöndum okkur við það,“ sagði Alma Möller.

María Pálsdóttir sagði í samtali við akureyri.net að opna bréfið frá Sólveigu yrði sett inn á Facebook-hópinn Vinir endurhæfingar á Kristnesi og hvatt til dreifingar á því. „Við ætlum að biðja alla og ömmu þeirra að senda þetta sama bréf á Ölmu, mynda þrýsting,“ segir María ákveðin og segir að baráttan haldi að sjálfsögðu áfram. „Það þarf bara að láta í sér heyra, það á ekki að láta hlutina gerast þegjandi og hljóðalaust. Við erum bara rétt að byrja,“ segir María Pálsdóttir.

Umfjöllun akureyri.net um ávarp Sólveigar Péturdóttur á samstöðutónleikum velunnara Kristnesspítala: