Fara í efni
Sjúkrahúsið á Akureyri

Aukið öryggi fylgir fjarheilbrigðisþjónustu

Þátttakendur í rannsókn á fjarheilbrigðisþjónustu við fólk með sykursýki af tegund 2 upplifðu aukið öryggi, betra aðgengi að hjúkrunarfræðingum og aukinn skilning á sjúkdómnum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í rannsókn Akureyringsins Maríu Bragadóttur, sem í dag ver meistararitgerð sína við Háskólann í Reykjavík. María kynnti niðurstöður sínar jafnframt á vísindadegi Sjúkrahússins á Akureyri í gær.

Rannsókn Maríu var hluti af meistaraverkefni hennar í stafrænni heilbrigðistækni við HR og var unnin á innkirtlamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri í nánu samstarfi við Evu Hilmarsdóttur, hjúkrunarfræðing á göngudeild lyflækninga, og Emilíu Fönn Andradóttur, sérfræðing í hjúkrun á göngudeild lyflækninga. Eva hlaut nýlega sérfræðileyfi í hjúkrun einstaklinga með sykursýki.

Auk þess sem áður er nefnt sýndu niðurstöðurnar að komum á göngudeild og símtölum til hjúkrunarfræðinga fækkaði verulega.
 
Fjallað er um rannsókn Maríu á vef Sjúkrahússins á Akureyri. Á meðal þess sem þar kemur fram er eftirfarandi:
 
  • Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig hægt væri að samþætta stafræna heilbrigðislausn við hefðbundna þjónustu við fólk með sykursýki af tegund 2 og meta áhrifin á upplifun og heilsufar skjólstæðinga, gæði þjónustunnar og nýtingu heilbrigðisþjónustu.
  • Rannsóknin fór fram í þremur áföngum. Fyrst unnu María, Eva og Emilía saman að því að aðlaga vinnulag móttökunnar og setja upp fjarheilbrigðislausn. Þar var meðal annars ákveðið hvaða mæligildum skyldi fylgjast með og hvernig viðmiðunarmörk, áminningar, fræðsla og samskipti skyldu útfærð.
  • Alls hófu 19 einstaklingar þátttöku og 16 luku fimm mánaða rannsóknartímabili. Að lokum var árangurinn metinn með mælingum, spurningalistum og viðtölum við þátttakendur og hjúkrunarfræðinga.
  • Komum þátttakenda á göngudeild fækkaði úr ellefu á fimm mánaða tímabilinu fyrir innleiðingu í tvær meðan fjarheilbrigðisþjónustan var veitt. Símtölum til hjúkrunarfræðinga fækkaði á sama tíma úr 46 í ellefu. Í báðum tilvikum var fækkunin tölfræðilega marktæk.
  • Ekki mældist marktæk breyting á langtímablóðsykri þátttakenda eða á álagi og erfiðleikum tengdum sykursýki. Niðurstöðurnar benda því til þess að fjarvöktun og stafræn samskipti hafi komið í stað eða verið viðbót við hluta hefðbundinna samskipta, án þess að vísbendingar kæmu fram um versnun klínískra niðurstaðna.
  • Reynsla þátttakenda af þjónustunni var almennt mjög góð. Þeir lýstu því að rauntímagögn og myndræn framsetning mælinga hefðu hjálpað þeim að skilja betur tengsl lífsstíls og blóðsykurs.
  • Þátttakendum fannst jafnframt þægilegt að geta sinnt mælingum heima og vita að hjúkrunarfræðingar fylgdust með niðurstöðunum.
  • Þótt komum og símtölum hefði fækkað upplifði meirihluti þátttakenda aukið aðgengi að hjúkrunarfræðingum. Góð samskipti í gegnum lausnina og vitneskjan um að hjúkrunarfræðingar fylgdust með mæligildum virðast hafa átt mikilvægan þátt í þeirri upplifun.

Samfelldari og sveiganlegri þjónusta

Fram kemur í umfjöllun á vef Sjúkrahússins að þær Eva og Emilía telji þjónustuna verða samfelldari, sveigjanlegri og betur sniðna að þörfum hvers og eins. Þær hafi upplifað aukna þátttöku skjólstæðinga í eigin meðferð og töldu rauntímaaðgang að mæligildum gera þeim kleift að greina frávik fyrr og bregðast hraðar við. Þá töldu þær vinnuálagið ekki hafa minnkað, en að tíminn nýtist betur. Fjarheilbrigðisþjónustan er hugsuð sem viðbót við hefðbundna þjónustu en ekki staðgengill hennar.

María segir niðurstöðurnar sýna að fjölmörg tækifæri felist í fjarheilbrigðisþjónustu, bæði til að bæta þjónustu og upplifun sjúklinga og gera vinnu klínísks starfsfólks markvissari. Tæknin skili þó ekki árangri ein og sér.

„Fagfólkið sem þekkir sjúklingana, starfsemina og þarfir þjónustunnar gegnir lykilhlutverki í að láta tæknina gagnast. Eva og Emilía komu að þróun þjónustunnar af miklum metnaði, fagmennsku og næmni fyrir þörfum sjúklinganna. Sú öfluga klíníska aðkoma var ein af meginforsendum þess árangurs sem náðist,“ segir María í umfjölluninni á vef SAk. „Ég vil nýta tækifærið og þakka Icepharma Velferð kærlega fyrir að leggja Unu Heilsu, fjarheilbrigðislausnina, til rannsóknarinnar og útvega þátttakendum þann búnað sem þurfti. Framlag þeirra skipti miklu máli.“