Fé til endurhæfingar er fjárfesting – ekki kostnaður
Sólveig Pétursdóttir, þjónustustjóri og yfirlæknir endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) segir að kostnaðartölur einar megi ekki ráða því hvort ráðist verði í viðgerðir á húsnæði Kristnesspítala þar sem endurhæfingarstarfsemi SAk hefur verið til fjölda ára.
Sólveig segir að kostnaður skipti að sjálfsögðu máli en einnig verði að hafa í huga mikilvægi þess að verja þau verðmæti sem séu fyrir hendi á staðnum; að leitað verði leiða til að efla þjónustuna með langtíma markmið endurhæfingarþjónustunnar í huga, og hagsmuni bæði nærsamfélagsins og íslensks samfélags í heild.
Sólveig segist ítrekað hafa séð hversu endurhæfing á Kristnesi skipti fólk miklu máli, og hversu miklu máli það skipti að í boði sé svo sérhæft endurhæfingarúrræði á landsbyggðinni.

Samstöðutónleikar á Kristnesi: Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur, Vilhelm B. Bragason kynnir og María Pálsdóttir, ein þeirra sem stóð fyrir samkomunni. Mynd: Þorgeir Baldursson.
Sólveig hélt ávarp á samkomu sem fram fór við Kristnesspítala um síðustu helgi, tónleikum sem baráttuhópur um áframhaldandi endurhæfingarstarfsemi á staðnum stóð fyrir í þeim tilgangi að vekja athygli á málefninu með jákvæðum og skemmtilegum hætti. Eins og akureyri.net hefur fjallað um í fréttum síðustu mánuði fannst mygla í húsnæði Kristnesspítala fyrr á árinu og hefur endurhæfingarstarfsemin verið færð til Akureyrar.
Hér verða dregnir fram nokkrir mikilvægir punktar úr ávarpi Sólveigar og neðst í fréttinni er hlekkur á ávarp hennar í heild.
- Ég hef í gegnum mitt starf hér séð það ítrekað hversu miklu máli þessi starfsemi skiptir fyrir skjólstæðingana okkar og hversu miklu máli það skiptir að í boði sé einmitt svona sérhæft endurhæfingarúrræði á landsbyggðinni.
- Ég tel að allflest okkar ... séum hér vegna þess að við berum fyrir brjósti hag þeirra sem þurfa á endurhæfingarþjónustu að halda og að við berum kyndil landsbyggðarinnar þar sérstaklega hátt á lofti.
- Við vitum aldrei hvort og þá hvenær röðin getur komið að okkur eða okkar nánustu að þurfa á þessari mikilvægu þjónustu að halda, þjónustu sem ég, Alþjóðaheilbrigiðismálastofnunin og margir fleiri flokkum sem grunnþjónustu og máttarstólpa í góðu heilbrigðiskerfi.
- ... við sem hér stöndum eigum það sameiginlegt að þekkja öll þá sérstöðu sem þessi staður og þetta umhverfi hefur og hversu gagnlegt það er fyrir endurhæfingu og ég efast ekki um að við finnum öll þann kraft og styrk sem hér býr.

Mynd: Þorgeir Baldursson
- Byggingar þessar tilheyra Kristnesspítala og síðustu áratugi hefur hér verið rekin öflug endurhæfingar- og öldrunarlækningadeild á vegum SAk, sú eina sinnar tegundar á landsbyggðinni. Því miður hafa þessar byggingar reynst það illa farnar af langvinnum rakaskemmdum og tilheyrandi myglu að ekki er talið heilsusamlegt að nýta þær lengur undir þessa þjónustu.
- Ég tel að við mörg, ef ekki hreinlega öll, deilum áhyggjum yfir því að ákvarðanir varðandi framhaldslíf þessara bygginga verði teknar við fjárhagslegt teikniborð pólitíkusa og ráðamanna í rýmum fjarri þeim stað er við stöndum á í dag. Þetta eru ákvarðanir um það hvort fjárfesta eigi í viðhaldi og nýbyggingum á þessum mæta stað til að tryggja hér húsnæði og aðbúnað svo hægt verði að sinna hér áframhaldandi endurhæfingarþjónustu um fyrirsjáanlega tíð.
- Þessar ákvarðanir verða teknar af fólki í ráðuneytum, ráðum eða nefndum, af fólki sem ég ætla ekki annað en að kunna sitt fag og hafa fullan vilja til að vinna verk sín vel og af metnaði, en mögulega af fólki sem þarf aðstoð google eða gervigreindar til að finna út úr því hvar á landakortinu Kristnes er og þekkir þar af leiðandi ekki hvaða þýðingu nafnið Kristnes hefur fyrir okkur sem hér stöndum og alla þá fjölmörgu sjúklinga og aðstandendur sem hér hafa notið skjóls og stuðnings á síðustu áratugum til að feta sig aftur út í lífið eftir áfall eða veikindi.

Mynd: Þorgeir Baldursson
- Ég tel að við séum hér í dag til að gera það sem við getum til að vekja máls á því með jákvæðum hætti hvers vegna það er mikilvægt að verja fé í viðgerðir og framkvæmdir í þágu endurhæfingar hér á Kristnesi.
- Við erum hér í dag til að benda á hversu mikilvægt það er að velja að verja fé til að verja þau verðmæti sem hér eru nú þegar til staðar, framkvæmdir til að verja verðmæti sem eru svo ómetanleg fyrir endurhæfingarþjónustu, þar með talið sundlaug, náttúruna og umhverfið með öllum sínum krafti, en á sama tíma dásamlegri ró og kyrrð, umhverfi sem er svo nauðsynlegt til að hjálpa okkur að ná að draga andann aftur djúpt og tengja við okkur sjálf.
- Ég hef ... setið fundi, lesið skýrslur og fengið svör við því hvert núverandi ástand bygginganna er. Ég hef setið fundi þar sem farið er yfir hvað talið er að þurfi að gera til að laga og bæta, svo hér verði aftur ákjósanlegt að reka heilbrigðisþjónustu í þessum húsum.
- Ég hef séð grófa fjárhagsáætlun um hvað slíkar framkvæmdir muni mögulega kosta. Áherslan hefur verið á gögn og tölur og kostnað samhliða nauðsynlegum viðgerðum og endurgerð, allt eins og lög gera ráð fyrir í hvaða rekstri sem er.

Mynd: Þorgeir Baldursson
- Þetta er allt mikilvægt og að mínu mati nauðsynlegur grunnur að því sem ég tel að sé eðlilegast að komi næst; framkvæmdum sem miða að því að verja þau verðmæti sem hér eru nú þegar til staðar í sundlaug, umhverfi og náttúru í mátulega þægilegri fjarlægð frá bæjarnið Akureyrar og annríkisins á bráðadeildum SAk ...
- ... framkvæmdum til að færa endurhæfingarþjónustu á landsbyggðinni inn í nútímann og skapa aðstæður til að efla og styrkja þjónustuna og skapa það rými sem þarf til að sinna þeirri auknu endurhæfingarþörf sem þegar er til staðar í samfélaginu og viðbúið er að muni fara vaxandi á komandi árum.
- Ég kalla eftir því að fá tækifæri til að sitja fundi þar sem umræða snýst um mikilvægi þess að fjárfesta og verja þessi verðmæti hér til að tryggja áfram sem besta endurhæfingarþjónustu á landsbyggðinni. Að sitja fundi þar sem áherslan er á að leita leiða til að efla þjónustuna með langtíma markmið endurhæfingarþjónustunnar og hagsmuni ekki bara nærsamfélagsins heldur íslenska samfélagsins alls í huga.
- Ég sakna þess að fá tækifæri til að rökræða um hvernig það að verja fé, jafnvel stórfé, til viðgerða og uppbyggingar á Kristnesi sé fjárfesting til framtíðar.
Að lokum, sagði Sólveig, vil ég ítreka og undirstrika sérstaklega til allra sem sjá og heyra að það að verja fé til endurhæfingar er ekki útlagður kostnaður sem þarf að halda í lágmarki.
- Það að verja fé til endurhæfingar er fjárfesting
- Það er fjárfesting í fólki
- Það er fjárfesting í samfélagi
- Og það er fjárfesting með ávöxtun sem við sem þjóð höfum ekki efni á að neita okkur um
- Endurhæfing borgar sig alltaf
- Ávarp Sólveigar á fundinum:
Það að verja fé til endurhæfingar er fjárfesting

Sólveig Pétursdóttir þjónustustjóri og yfirlæknir endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri.