Fara í efni
Sjúkrahúsið á Akureyri

Kristnesspítala lokað fjórar vikur í sumar

Kristnesspítali í Eyjafjarðarsveit. Mynd af vef Sjúkrahússins á Akureyri.

Ákveðið hefur verið að loka Kristnesspítala í fjórar vikur í sumar en þar eru endurhæfinga- og öldrunardeildir Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Lokað verður frá og með 22. júní til 21. júlí. 

Búast má við að það taki viku að ná upp fullri starfsemi að loknu sumarleyfi, segir á vef SAk.

„Með þessu móti mun skerðing á endurhæfingastarfsemi stofnunarinnar verða með minnsta móti í stað þess að halda úti starfsemi á deild með takmarkaða starfsemi í allt að 12 vikur yfir sumarið,“ segir Helgi Þór Leifsson, framkvæmdastjóri klínískrar þjónustu, á vef Sjúkrahússins á Akureyri.