Fara í efni
Sjúkrahúsið á Akureyri

„Áhugi á útboðinu greinilega mikill“

Mikill áhugi er á útboði sem nýlega var auglýst vegna fyrsta áfanga verkframkvæmda við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) að sögn Gunnars Svavarssonar, forstjóra Nýs Landspítala ohf (NLSH) sem sér um þær framkvæmdir allar fyrir hönd ríkisins. Eins og akureyri.net hefur fjallað ítarlega um rís senn bygging sunnan við núverandi húsakosts og verkið sem nú hefur verið boðið út felst einkum í jarðvinnu, malbikun nýrra bílastæða og endurnýjun veitukerfi á lóð sjúkrahússins á milli Þórunnarstrætis og Búðartraðar.

Gunnar segir að vel á þriðja tug fyrirtækja hafi sótt gögn í rafræna útboðskerfið en NLSH eigi þó von á innan við 10 tilboðum miðað við reynslu af slíkum verkum. „Mjög margir tækniaðilar sækja útboðsgögn sem þessi, eingöngu til að skoða lausnir eða eignast texta sem nýtist í öðrum útboðum. Í opinberum útboðum er allt upp á borðum þannig að það er þá kostur að sem flestir skoði gögnin sér til upplýsingar,“ segir Gunnar.

Hljóta að vera byrjaðir að reikna

Tilboðsfrestur er til 29. apríl og auglýstur hefur verið kynningarfundur vegna þessa fyrsta áfanga framkvæmdanna. Fundurinn verður á morgun, fimmtudaginn 9. apríl á SAk. „Áhuginn er greinilega mikill og vænta má að ennþá fleiri sæki gögnin í aðdraganda kynningarfundarins sem er öllum opinn sem hafa áhuga á jarðvinnuútboðinu,“ segir Gunnar við akureyri.net. „Mesta sorgin væri að fá engin tilboð, líkt og opinberir aðilar hafa upplifað. Ég hef þó enga trú á því vegna þess að SAk verkefnið er það mikilvægt að verktakar vilja einfaldlega vera hluti af þessu mjög svo jákvæða verkefni á Akureyri. Heimamenn hljóta að vera byrjaðir að reikna,“ segir hann.

Gunnar Svavarsson, forstjóri Nýs Landspítala ohf.

Verkefnið Gunnari afar hugfólgið

Gunnar segist eiga von á góðum og gagnlegum fundi sem muni nýtast bjóðendum, en einnig verður verksvæðið skoðað í lok fundarins. „Fyrir mig persónulega er verkefnið á Akureyri mér afar hugfólgið. Jafnvel þótt ég geri ekki upp á milli allra verkefna NLSH, þá á ég margar mínar bestu minningar frá heimasvæði Akureyrar og alla leið austur í sveitir. Mitt fólk, ættingjar, vinir og skólasystkin búa á þessu þjónustusvæði sjúkrahússins og ég hugsa með miklum kærleik til þess að geta tekið þátt í nýrri uppbyggingu á Sjúkrahúsinu á Akureyri í samstarfi við öflugt fólk sem vill verkinu vel, heimafólk sem aðrir.“

Nýi Landspítalinn ohf. sér um það gríðarstóra verkefni sem bygging nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík er, eins og nafnið gefur til kynna, en tók við SAk verkefninu í febrúar árið 2023 þegar fjármála- og efnahagsráðuneytið fól félaginu að sjá einnig um uppbyggingu og framkvæmdir á sérhæfðum sjúkrahúsum. „Verkefnin höfðu verið hjá Framkvæmdasýslunni en ráðuneytið vildi nýta sérhæfingu NLSH vegna sjúkrahúsbygginga sem félagið hafði aflaði sér við Hringbraut. Stuttu áður hafði NLSH verið falin uppbygging á Grensásdeildinni, endurhæfingarsjúkrahúsi Landspítala, því verkefni lýkur að fullu um og eftir næstu áramót. Það sama gerðist síðan með uppbyggingu á húsi Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og endurbætur á Læknagarði, NLSH sér um þau verkefni.“

Hyllir undir lok hönnunar

Gunnar segir að NLSH og SAk hafi gert með sér samstarfssamning í maí 2023 og „þá hófu aðilar strax skoðun á þeim gögnum sem þegar voru til staðar, svo sem frumathugun frá árunum 2015 og 2021. Nýjar áherslur komu fram er varðar geðþjónustuna auk þess sem gerð var ítarlegri yfirferð á tæknimálum og stoðrýmum. NLSH náði að auglýsa forval vegna hönnunar í nóvember 2023, en samningsundirskift við Verkís-hönnunarhópinn var í sumarbyrjun árið eftir.“

Síðan hönnunarhópurinn kom að málinu hafa starfsmenn NLSH og SAk unnið með hópnum samkvæmt áætlun og á þessi ári hyllir undir lok hönnunar. „Rýni og fullnaðaryfirferð fer síðan fram áður en næsti útboðsáfangi er boðinn út, sem er alverk á nýbyggingunni,“ segir Gunnar Svavarsson.