Baklóð Hvannavalla 10 ekki breytt í bílastæði
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur hafnað ósk Vesturkants ehf., eiganda Hvannavalla 10, um breytingu á deiliskipulagi í þeim tilgangi að útbúa og reka bílastæði til útleigu fyrir almenning á austurhluta lóðarinnar, baklóð austan núverandi byggingar, eins og akureyri.net fjallaði um í frétt í lok september. Ráðið samþykkti hins vegar erindi eigendanna um deiliskipulagsbreytingu vegna notkunar á húsinu sjálfu þar sem hugmyndin er að meðal annars verði geymslur til útleigu.
Í gildandi deiliskipulagi sem er frá 2023 er gert ráð fyrir að núverandi hús víki fyrir fjögurra hæða fjölbýlishúsi með allt að 20 íbúðum, inndreginni efstu hæð og bílakjallara. „Sú uppbyggingarheimild er í samræmi við þéttingarstefnu fyrir Oddeyri og helst óbreytt,“ segir meðal annars í erindi Vesturkants til skipulagsráðs.
Eigendur eru ekki að falla frá þeirri framtíðarsýn, en óska nú eftir leyfi til að breyta skilmálum um nýtingu lóðarinnar til samræmis við gildandi skilgreiningu svæðisins sem Miðsvæðis í aðalskipulagi. Tilefni breytinganna nú er vilji lóðarhafa til að nýta núverandi hús á lóðinni og heimila verslunar- og þjónustustarfsemi á jarðhæð, þar með talið útleigu geymslubila.
Orlofsíbúðir, gistiheimili, frístundahús og geymslur
Eigendur Vesturkants eru Kristín Björk Hjaltadóttir og Bjarni Gunnarsson. Vesturkantur er rekur meðal annars orlofsíbúðir, gistiheimili og frístundahús á Akureyri undir merkjum Hrímlands. Rekstur á geymslum til útleigu er þó ekki ný af nálinni hjá þeim Bjarna og Kristínu því Vesturkantur er einnig eigandi að fyrirtækinu AK geymslur sem hefur leigt út geymslupláss á Akureyri frá 2018, fyrst í Dagshúsinu í Strandgötu 31 og nú einnig í nýju húsi að Týsnesi 12.

Séð inn að baklóð Hvannavalla 10 þar sem eigendur höfðu hug á að útbúa bílastæði til útleigu, en fá ekki heimild til þess hjá skipulagsráði. Mynd: Haraldur Ingólfsson.
Skipulagsráð samþykkti að gerð yrði breyting á deiliskipulagi sem felur í sér að heimilt verði að endurgera núverandi byggingu með heimild til að nýta hana sem verslunar- og þjónustuhúsnæði, þar með talið til útleigu geymslubila. Ráðið hafnaði hins vegar ósk um að baklóð verði nýtt sem bílastæði eða til geymslu á lausafjármunum, eins og áður sgði. „Er áfram gert ráð fyrir að hægt verði að byggja upp íbúðrhús í samræmi við gildandi skipulag síðar,“ segir meðal annars í afgreiðslu ráðsins.