Fara í efni
Fréttir

Hætta við niðurrif að Hvannavöllum 10

Hvannavellir 10 í dag. Guli liturinn er að víkja fyrir gráum, en húsið mun ekki víkja miðað við nýjustu áform eigenda. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Eigendur fasteignarinnar að Hvannavöllum 10, þar sem Hjálpræðisherinn var til húsa í fjóra áratugi, hafa fallið frá þeim áformum að rífa húsið og byggja þar fjölbýlishús. Forsendur lóðarhafa hafa breyst, að því er fram kemur í erindi til skipulagsráðs.

Í stað niðurrifs hefur Vesturkantur ehf. nú sótt um leyfi til skipulagsráðs Akureyrarbæjar að gera breytingu á deiliskipulagi fyrir umrædda lóð. Miðað við þær óskir sem nú hafa verið lagðar fram er hugmyndin að núverandi hús standi áfram, en að heimilt verði að gera endurbætur og breytingar á innra skipulagi og ytra útliti þess. 

Mynd tekin af Hvannavöllum 10 vorið 2020. Hjálpræðisherinn var þarna til húsa í tæp 40 ár, frá hausti 1981 fram í mars 2021. Nytjamarkaður Norðurhjálpar var starfræktur í húsinu frá október 2023 fram í apríl 2024. Viðreisn nýtti húsnæðið í aðdraganda kosninga síðla árs 2024. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Áform um byggingu fjölbýlishúss komu fyrst inn á borð skipulagsráðs fyrir fimm árum, í september 2021 þegar lóðarhafi lagði fram tillögu að nýju fjögurra hæða fjölbýlishúsi þar sem gert yrði ráð fyrir 23 íbúðum. Í framhaldinu fékk lóðarhafi leyfi til að vinna tillögu að deiliskipulagi í samræmi við þær hugmyndir.

Deiliskipulaginu var breytt 2023 og er í gildandi skipulagi gert ráð fyrir að núverandi hús við Hvannavelli 10 verði fjarlægt og á lóðinni rísi fjölbýlishús á fjórum hæðum með allt að 20 íbúðum og bílageymslu neðanjarðar. Skipulagsbreytingin sem nú er sóst eftir miðar að því að breyta lóðinni aftur í verslunar- og þjónustulóð. 

Áforma að reka bílastæði til útleigu

Áform eigenda ganga einnig út á að reka bílastæði til útleigu fyrir almenning á austurhluta lóðarinnar, á baklóð austan núverandi byggingar. Sú hugmynd er sjálfstæð og óháð annarri starfsemi í húsinu, að því er fram kemur í umsókninni.

Séð inn að baklóð Hvannavalla 10 þar sem eigendur vilja koma fyrir 15 bílastæðum. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Hugmyndin gengur út á að fá heimild til að koma fyrir bílastæðum, akstursleiðum, greiðslubúnaði og öðru sem tilheyrir slíkri starfsemi. Tekið er fram að bílastæðasvæðið sé eingöngu ætlað fyrir skammtíma- eða langtímageymslu skráðra ökutækja og að þar sé ekki heimil viðgerðarstarfsemi, þvottur ökutækja, geymsla ónýtra eða óskráðra ökutækja né önnur starfsemi sem veldur auknu ónæði eða mengunarhættu. Eins og sjá má á myndinni hér að neðan er gert ráð fyrir 15 stæðum á baklóðinni.

Skjáskot úr tillögu að deiliskipulagsbreytingu til vinstri og af map.is/akureyri til hægri. Á loftmyndinni má sjá ónýtt svæði á baklóð Hvannavalla 10. 

 Skipulagsráð frestaði afgreiðslu málsins í liðinni viku og fól skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda.