Fara í efni
Körfuknattleikur

Fjórir leikmenn KA valdir í „elítuhóp“ HSÍ

Jens Bragi Bergþórsson, Dagur Árni Heimisson, Ágúst Elí Björgvinsson og Dagur Gautason. Myndir: Hafliði Breiðfjörð og Ármann Hinrik

Fjórir leikmenn handboltaliðs KA – og einn uppalinn KA-maður að auki – eru í 21 manns „elítuhópi HSÍ“, sem kemur saman til þriggja daga æfingatarnar í vikunni. Hópurinn hittist fimmtudaginn 17. september og æfir fram á laugardag 19. september.

„Í hópnum er blanda af leikmönnum sem hafa þegar bankað á dyrnar hjá A-landsliðinu og efnilegustu leikmönnum landsins sem eru að stíga sín fyrstu skref í Olísdeildinni,“  segir á vef Handknattleikssambands Íslands.

„Tilgangurinn er að stytta bilið frá þeim efnilegustu til þeirra bestu og auðvelda leikmönnum að taka skrefið inn í A-landsliðið þegar þar að kemur,“ skrifar Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður RÚV og fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, í frétt á vef RÚV.

Markverðir:

  • Ágúst Elí Björgvinsson, KA
  • Einar Baldvin Baldvinsson, Afturelding
  • Jón Þórarinn Þorsteinsson, FH

Aðrir leikmenn:

  • Arnór Snær Óskarsson, Valur
  • Ágúst Guðmundsson, FH
  • Brynjar Narfi Arndal, FH
  • Dagur Gautason, KA
  • Dagur Árni Heimisson, KA
  • Daníel Montoro, Valur
  • Freyr Aronsson, Haukar
  • Gunnar Róbertsson, Valur
  • Harri Halldórsson, Afturelding
  • Ingvar Dagur Gunnarsson, FH
  • Jens Bragi Bergþórsson, KA
  • Jón Bjarni Ólafsson, FH
  • Ómar Darri Sigurgeirsson, FH
  • Sigurður Páll Matthíasson, Víkingur
  • Skarphéðinn Ívar Einarsson, Haukar
    (KA-maður sem gekk til liðs við Hauka sumarið 2024)
  • Stefán Magni Hjartarson, Afturelding
  • Ævar Smári Gunnarsson, Afturelding
  • Össur Haraldsson, Haukar

Þjálfarateymið og starfsmenn hópsins eru Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari, Óskar Bjarni Óskarsson, Hrannar Guðmundsson, Roland Eradze, Jón Gunnar Kristjánsson, Guðni Jónsson og Erlendur Egilsson.