Fara í efni
Körfuknattleikur

Barist um þrjá bikara í leikjum dagsins

Akureyrarlið í fjórum íþróttagreinum verða í eldlínunni í dag. Barist um bikar í fótbolta og blaki, handboltakonur spila fyrsta heimaleikinn og kvennaleikur í íshokkí í boði í Skautahöllinni. 

  • Keppnistímabilið í blaki hefst formlega í dag með leikjum um titlana meistarar meistaranna í Unbroken-deildum karla og kvenna. Karlarnir byrja, Íslandsmeistarar KA mæta bikarmeisturum Hamars. Konurnar taka svo við og takast KA-konur á við Íslands- og bikarmeistara HK, en KA varð í 2. sæti í báðum keppnunum. Leikirnir fara fram í Kópavogi.

  • Úrslitaleikur 5. deildar karla í knattspyrnu fer fram á Akureyri í dag. Upphaflega var leikurinn á dagskrá á KA-vellilnum kl. 15, en hefur verið færður á Þórsvöllilnn og hefst kl. 16. Þessa dagana eru bæði vellir og búningsklefar umsetnir þegar félögin keppast við að koma fyrir leikjum yngri flokka í fótboltanum á sama tíma og íþróttagreinar vetrarins eru komnar í gang. Það vill reyndar svo til að á Þórsvellinum verður leikur U20 liðs kvenna kl. 14 þannig að þar verður stutt hlé á milli leikja, en klárt að í lok leiks Hamranna og Skallagríms fer bikar á loft, leikið til þrautar þar til annað liðið stendur uppi sem sigurvegari. Bæði lið hafa reyndar nú þegar tryggt sér sæti í 4. deildinni að ári.

  • KA/Þór spilar fyrsta heimaleikinn sinn í Olísdeildinni, efstu deild Íslandsmótsins í handbolta, í dag. Valur Sæmundsson hitar upp fyrir leikinn í annarri grein sem akureyri.net birtir í dag, með viðtali við þjálfara um komandi tímabil, væntingar og að sjálfsögðu farið yfir breytingar á liðinu.

  • Hokkíkonurnar í Skautafélagi Akureyrar eru komnar á fullt, nú þegar búnar að vinna Íslandsmeistara SR á heimavelli og strax komið að öðrum heimaleik í dag þegar lið Fjölnis kemur norður. Eftir þennan leik verður smá hlé á deildarkeppninni, en áhugavert hraðmót verður haldið í Reykjavík síðar í mánuðinum með þátttöku íslensku félagsliðanna og írska landsliðsins.

Það er ekki á hverjum degi sem úrslitaleikir eru spilaðir á Akureyri, en einn slíkur er á dagskrá í dag þegar liðin sem færast úr 5. deild upp í þá fjórðu bítast um deildarmeistaratitil 5. deildar. Akureyrarlið Hamranna tekur þá á móti liði Skallagríms úr Borgarnesi.

  • Fótbolti
    5. deild karla, úrslitaleikur
    Þórsvöllur kl. 17 (breyttur leiktími og leikstaður)
    Hamrarnir - Skallagrímur

Annar heimaleikur á dagskrá hjá SA-konum síðdegis í dag eftir öruggan sigur á Íslandsmeisturunum í fyrsta leik.

  • Íshokkí
    Toppdeild kvenna
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - Fjölnir

Fyrsti heimaleikur KA/Þórs í 2. umferð Olísdeildar kvenna, efstu deild Íslandsmótsins. Liðið hóf keppni í deildinni um liðna helgi með heimsókn til Vestmannaeyja, þar sem heimakonur höfðu betur, en akureyri.net hitar upp fyrir handboltavertíðina hjá konunum með sér grein í dag.

  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 2. umferð
    KA-heimilið kl. 17
    KA/Þór - Haukar

Leikið er um titlana meistarar meistaranna í blaki í dag. Þar eru bæði KA-liðin í eldlínunni. Í karlaflokki mætast Íslandsmeistarar KA og bikarmeistarar Hamars og í kvennaflokki mætir KA Íslands- og bikarmeisturum HK.

  • Blak
    Meistarar meistaranna í Unbroken-deild karla
    Íþróttamiðstöðin Digranesi í Kópavogi kl. 16:30
    KA - Hamar

  • Blak
    Meistarar meistaranna í Unbroken-deild kvenna
    Íþróttamiðstöðin Digranesi í Kópavogi kl. 19
    HK - KA