Fara í efni
Knattspyrna

Stórt tap fyrir Fram í síðasta deildarleiknum

Mynd: Skapti Hallgrímsson

KA/Þór tapaði með 10 marka mun, 35:25, fyrir Fram í dag í lokaumferð Olísdeildar kvenna í handbolta. Liðin mættust í Lambhagahöll Fram í Reykjavík, aðeins munaði þremur mörk í hálfleik – staðan þá 15:12 Fram í hag – en hvorki gekk né rak hjá gestunum í seinni hálfleik og Framarar höfðu yfirburði. Þegar 10 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik var munurinn orðinn átta mörk og Framarar komust mest 12 mörkum yfir þegar stutt var til leiksloka.

Úrslitin breyttu engu um lokastöðuna í deildinni; Fram var og verður í fimmta sæti, endaði með 20 stig, og KA/Þór var um kyrrt í sjötta sæti með 15 stig.
 
Tvö efstu liðin eftir deildarkeppnina, Valur og ÍBV, sitja hjá í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en liðin í 3.-6. sæti glíma um tvö sæti í undanúrslitum. KA/Þór mætir Haukum, sem urðu í þriðja sæti, og verður fyrsti leikur liðanna í Hafnarfirði um næstu helgi.
 

Mörk KA/Þórs í dag: Lydía Gunnþórsdóttir 7 (þar af 6 víti), Trude Blestrud Hakonsen 5, Tinna Valgerður Gísladóttir 4, Susanne Denise Pettersen 3, Herdís Eiríksdóttir 2, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 2, Þórunn Nadía Hlynsdóttir 1, Selma Sigurðardóttir 1.

Varin skot: Bernadett Leiner 9, 22% – Selma Sigurðardóttir 0.

Mörk Fram: Hulda Dagsdóttir 7, Ásdís Guðmundsdóttir 6 (þar af 5 víti), Harpa María Friðgeirsdóttir 4, Katrín Anna Ásmundsdóttir 4, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 4, Valgerður Arnalds 3, Silja Katrín Gunnarsdóttir 2, Katla Kristín Hrafnkelsdóttir 2, Íris Anna Gísladóttir 1, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 1, Sunna Jónsdóttir 1.

Varin skot: Arna Sif Jónsdóttir 8, 40% – Ethel Gyða Bjarnasen 5 (þar af 1 víti), 29,4%.