Spenna í lokaumferð 1. deildar karla
Lokaumferð 1. deildar karla í körfubolta er á dagskrá kvöldsins. Þórsarar sækja lið Selfyssinga heim. Þrjú lið berjast við að forðast fall úr deildinni, Þór, Hamar og Fylkir.
Þór er enn í 10. sæti deildarinnar með fjóra sigra, eins og Hamar. Þór vann báða leikina gegn Hamri og er því ofar á betri árangri í innbyrðis viðureignum þessara liða. Fylkir er áfram í neðsta sætinu þrátt fyrir sigurinn gegn Þór á sunnudag, en vantar aðeins einn sigur til að ná Þór og Hamri þegar einni umferð er ólokið. Það má því búast við nokkurri spennu í leikjum lokaumferðarinnar í kvöld. Þrjú neðstu liðin eiga öll útileik fyrir höndum, Þór gegn Selfossi, Hamar gegn Snæfelli í Stykkishólmi og Fylkir gegn Breiðabliki í Kópavogi.
- 1. deild karla í körfubolta
Vallaskóli á Selfossi kl. 19.15
Selfoss - Þór - Útsending: SÝN KKÍ TV1
Áskriftarsjónvarp
Þór tapaði fyrri viðureigninni við Selfyssinga í vetur með sex stiga mun, 75-81.
Innbyrðis viðureignir þriggja neðstu liðanna
- Hamar - Þór 89-115
- Þór - Hamar 77-72
Þór með tvo sigra - Þór - Fylkir 96-86
- Fylkir - Þór 113-100
Fylkir með +3 stig - Fylkir - Hamar 98-108
- Hamar - Fylkir 94-115
Fylkir með +11 stig
Fylkir er með betri árangur í innbyrðis viðureignum við bæði Þór og Hamar og myndi því nægja að ná öðru þeirra eða báðum. Fylkir á þó erfiðasta leikinn eftir af þessum þremur liðum, gegn Breiðabliki sem er í 4. sæti deildarinnar. Þórsurum nægir að vinna Selfoss, eða þá að Hamar og/eða Fylkir tapi. Fari svo að bæði Hamar og Fylkir vinni, en Þór tapi í lokaumferðinni endar Þór í neðsta sætinu. Eitt lið fellur úr deildinni.