María Sól Helgadóttir, Emilie Ravn og Iho Lopez í fyrri viðureign Þórs og Selfoss, sennilega einu viðureign liðanna, á þessu tímabili. Mynd: Helgi Heiðar Jóhannesson.
Stjórn körfuknattleiksdeildar Þórs ákvað í morgun að senda kvennalið sitt ekki út í óveður og óvissu í trássi við mat mótanefndar Körfuknattleikssambands Íslands. Þór átti að mæta liði Selfoss í Vallaskóla á Selfossi í kvöld, en ákvörðun stjórnarinnar þýðir væntanlega að liðinu verður dæmdur ósigur og deildin sektuð af KKÍ.
Segja má að stálin stinn hafi mæst, mótanefnd neitaði að fresta, Þór neitaði að senda liðið út í óveður á leiðinni. Sambandið og félagið veðjuðu hvort á sinn hest, að segja má.
Kom ekki til greina hjá mótanefnd
Guðjón Andri Gylfason, formaður körfuknattleiksdeildar Þórs, segir að ekki hafi komið til umræðu hjá KKÍ að fresta leik. Þar á bæ hafi menn borið fyrir sig að dagskráin væri orðin svo þétt að það væri ekki hægt. Í því sambandi má nefna að síðastliðinn sunnudag átti Þórsliðið að taka á móti Vestra, en leiknum frestað vegna óveðurs á leið Ísfirðinga til Akureyrar. Samkvæmt mótakerfi KKÍ hefur sá leikur verið settur á sunnudaginn 22. mars, en liðið á svo einnig að taka á móti Snæfelli í lokaleik sínum í deildinni þriðjudagskvöldið 24. mars.
Þór verður væntanlega dæmdur ósigur þegar Selfyssingar og dómarar mæta til leiks í Vallaskóla á Selfossi í kvöld, en leikurinn átti að hefjast kl. 19:15. Guðjón Andri lítur svo á að með því að bera fyrir sig að of mikið vesen myndi fylgja því að fresta leiknum sé mótanefnd tilbúin að fórna leikmönnum fyrir dagatalið. Umspil næstneðsta liðs Bónusdeildar og liðanna í 2.-4. sæti 1. deildar, sem eru Þór, Fjölnir og Selfoss. Leikdagar í 1. umferð umspilsins eru, samkvæmt leikjadagatali KKÍ, 29. mars og 1., 6., 10. og 14. apríl. Ekki er þó víst að leika þurfi 10. og 14. apríl.
Einfalt val með öryggi leikmanna í huga
Ólafur Torfason, gjaldkeri stjórnar körfuknattleiksdeildar Þórs, velti fyrir sér ábyrgð sinni sem stjórnarmanni og sjálfboðaliða í íþróttafélagi. Hann skrifaði stuttan pistil á Facebook nú síðdegis þar sem hann segir að valið hafi verið einfalt.
„Valið okkar í stjórninni er einfalt. Við ætlum ekki að fara senda okkar leikmenn út í einhverja óvissu vitandi það að ferðarskilyrðin eru mjög slæm á landinu. Ég ætla ekki að hafa það á minni samvisku ef eitthvað kæmi fyrir mína leikmenn og borga því frekar sekt upp á einhverja hundraðþúsund kalla en að senda þá út í óvissuna. Það er ekkert ferðarveður eins og staðan er núna,“ skrifar Ólafur.
Pistill Ólafs í heild:
Hvaða ábyrgð ber ég sem stjórnarmaður og sjálfboðaliði hjá mínu íþróttafélagi? Jú til mín eru gerðar töluverðar kröfur eins og að allur rekstur sé í lagi þ.e fjárhagslega og að allur aðbúnaður leikamanna sé eins og best verður á kosið. Þá er ég að tala um allt frá yngstu leikmönnunum upp í meistarflokk. Einnig þarf að hugsa íþróttina út frá keppnissjónarmiði og sem forvarnarstarf og að öllum iðkendum líði sem best í sinni íþrótt. Ábyrgðin er töluverð og að mörgu að hyggja.
Í dag er staðan þannig að kvennalið Þórs í körfubolta á að spila leik á Selfossi. Strax í gær var byrjað að vara við ferðum milli landshluta vegna veðurs og núna er búið að aflýsa öllu flugi og jú heiðarnar eru reyndar opnar en víða óveður á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Staðan er því þannig að það er algjörlega óviðunandi að senda mína leikmenn út í óvissuna um hvort þær komist á leiðarenda til að spila sinn leik og með óvissu um hvenær þær komist til baka með tilheyrandi kostnaði fyrir félagið. Þau skilaboð sem við stjórnarmenn félagsins höfum fengið frá mótanefnd Körfuknattleikssambandsins er að leikurinn skuli fara fram og ef liðið mæti ekki til leiks þá er það sekt upp á nokkra hundraðþúsund kalla.
Valið okkar í stjórninni er einfalt. Við ætlum ekki að fara senda okkar leikmenn út í einhverja óvissu vitandi það að ferðarskilyrðin eru mjög slæm á landinu. Ég ætla ekki að hafa það á minni samvisku ef eitthvað kæmi fyrir mína leikmenn og borga því frekar sekt upp á einhverja hundraðþúsund kalla en að senda þá út í óvissuna. Það er ekkert ferðarveður eins og staðan er núna.