Fara í efni
KA

Væri fáránlegt að ætla sér ekki öll þrjú stigin

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs er afar ánægður með ástandið á sínum leikmannahópi fyrir stórleikinn gegn KA í 24. umferð Bestu deildar karla í fótbolta sem fram fer á nýja KA-vellinum klukkan 19.30 í kvöld.

Akureyrarliðin mætast þar í gríðarlega mikilvægum fallbaráttuleik en Þór er með 21 stig, KA 20 og ÍBV 18 í þremur neðstu sætum deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir og því þarf ekki að fara mörgum orðum um þýðingu leiksins.

Þeir tveir leikmenn Þórs sem misstu af síðasta leik, Ásbjörn Líndal Arnarsson og Birgir Ómar Hlynsson, eru tilbúnir í slaginn og enginn er í leikbanni.

„Ásbjörn spilaði með 2. flokki í Evrópuleiknum á miðvikudag og Birgir æfði á fullu sama dag þannig að það eru allir heilir. Nú eru stærstu leikirnir að koma og þá vill engin vera meiddur. Það er mjög jákvæð staða á öllu hjá liði þegar allir eru heilir þegar mest er undir á tímabilinu. Enginn í banni og þetta líkur feykilega vel út,“ sagði Sigurður Heiðar þegar akureyri.net settist niður með honum í Hamri og fór yfir stórleikinn sem framundan er, ásamt því að ræða við hann um framtíð hans og félagsins.

Leikmenn Þórs tollera Sigurð þjálfara eftir að liðið tryggði sér sigur í Lengjudeildinni í fyrrahaust og þar með sæti í efstu deild Íslandsmótsins eftir 12 ára fjarveru. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Tel að pressan sé meiri á KA

Hvernig er aðdragandinn að þessum leik, er hann öðruvísi en að hinum tveimur leikjum liðanna í deildinni?

„Já, að einhverju leyti. Tilfinningin er sú að hinir tveir leikirnir hafi verið stakir leikir í deild, en nú er komin úrslitakeppni og við erum stigi fyrir ofan þá í töflunni. Ég held að í aðdragandanum að þessum leik vegi sú staðreynd dálítið þungt, líka hjá stuðningsfólki, og verður mikið rædd og hugsuð áður en flautað verður til leiks.“

Það er ljóst að liðið sem tapar þessum leik er í mjög vondri stöðu.

„Já, ég held að þeir séu í töluvert verri stöðu en við ef út í það er farið, og að því leytinu tel ég að pressan sé meiri á þeim.“

Þannig að þið eruð sá aðilinn sem væri sáttari með að fara með eitt stig út úr þessum leik?

„Þeir líta pottþétt á þetta þannig. Auðvitað erum við fyrir ofan þá í deildinni þar sem munar einu stigi en það væri fáránlegt að mæta í þennan leik og ætla sér ekki öll þrjú stigin.“

Sigurður Heiðar og aðstoðarþjálfarinn Eiður Benedikt Eiríksson. Mynd: Ármann Hinrik

Gott að spila þennan fyrir landsleikjafríið

Eftir þennan leik spilið þið tvo heimaleiki en þeir tvo útileiki. Það hlýtur að spila eitthvað inn í þetta líka?

Ég er viss um að það gerir það. Þar er líka um risastóra leiki að ræða og fyrir okkur er mjög gott að fá þennan leik gegn KA fyrir landsleikjafríið. Klára hann af því það hefði verið slæmt að fara inn í fríið með þennan leik hangandi yfir sér. Ég held að bæði liðin horfi líka á hann þannig að þau séu að koma úr vondu tapi í síðustu umferð (Þór gegn Val og KA gegn FH), og bæði lið hljóta að vera mjög þyrst í að bæta upp fyrir síðasta leik.

Ég held að leikurinn komi á frábærum tíma fyrir bæði lið og það gerir einhvern veginn að verkum að hann verður ennþá stærri og meira taugatrekkjandi.

Næsti leikur er yfirleitt mikilvægasti leikurinn en er þetta samt ekki ykkar mikilvægasti leikur í langan tíma?

„Við spiluðum náttúrulega rosalega mikilvægan leik út í Eyjum um daginn, urðum að vinna hann og gerðum það. Þess vegna var FH-leikurinn í kjölfarið líka risastór því við hefðum getað misst þá aðeins frá okkur. Valsleikurinn var aðeins öðruvísi en svo kemur þessi slagur gegn KA. Auðvitað eru leikirnir gegn liðunum sem eru í kringum okkur í töflunni svakalega mikilvægir. Það er mikið undir og ég held að þessi leikur sé enn mikilvægari fyrir KA-menn en fyrir okkur.“

Hluti stuðningsmanna Þórs á nýja Greifavellinum í lok júlí þegar Þór og KA gerðu markalaust jafntefli. Stemningin á leiknum var góð og búast má við hinu sama í kvöld. Mynd: Ármann Hinrik

Finnst við vera á góðum stað

Þið eigið fjóra leiki eftir og eruð í tíunda sæti. Eruð nýliðar í deildinni og ykkur var almennt spáð falli í vor. Hefðirðu tekið því fyrirfram að vera ekki í fallsæti þegar fjórir leikir væru eftir af mótinu?

Já, ég hugsa það. Við vissum að við værum að fara inn í tímabil í efstu deild með mikið af ungum og uppöldum leikmönnum, og öll tölfræði og samantekt á þeim nótum er svakalega mikið okkur í hag miðað við önnur lið í deildinni.

Það er sjálfsagt algjör geðveiki að koma inn í svona sterka deild á þennan hátt og ætla að gera þetta svona, en við gerðum það og erum mjög stoltir af því hvernig liðið hefur stækkað og hvernig leikmennirnir hafa stækkað og stigið upp eftir því sem liðið hefur á tímabilið.

Við höfum verið rosalega ánægðir með okkar uppöldu menn og okkar uppalda lið, og að mörgu leyti tók það okkur dálítinn tíma að átta okkur á tempóinu í deildinni. Mér finnst við vera á góðum stað með það í dag. Auðvitað var seinni hálfleikurinn á móti Val ekkert sérstaklega góður, enda þótt við kæmum vel inn í þann leik og spiluðum okkar besta bolta á fyrstu 20 mínútunum, og síðustu 10-15 mínúturnar í fyrri hálfleik.

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Stoltir að hafa haldið í okkar gildi

En svo kom svona bragur á okkur eins og var um miðbik mótsins, og hlutir sem við héldum að við værum búnir að ýta algjörlega út úr okkar leik fóru að dúkka upp aftur. Ég held að sá leikur hafi verið góð áminning um að einbeitingarleysi er þinn versti óvinur í þessari deild. Sá fótbolti sem við viljum spila gengur út á einbeitingu, það er sá fótbolti sem við trúum á, og okkur finnst hann þroska okkar ungu menn sem við viljum að taki næstu skref í fótboltanum.

Við höfum því haldið okkur við það og það er gaman að sjá þegar við horfum á þessa heimaleiki hérna undanfarið gegn FH, Breiðabliki og Víkingi að gildin okkar, sem menn voru farnir að efast um, virkuðu og skinu mjög skært í þeim sigurleikjum. Þess vegna höfum við eðlilega reynt að halda í þau og erum stoltir af því hafa gert það og ekki stressast of mikið upp þegar versti kaflinn var í gangi.

Nýju mennirnir breyttu miklu

Þið fenguð talsverðan liðsauka á miðju sumri. Þetta virðist hafa þétt hópinn vel og gert hann betur í stakk búinn fyrir þennan mikilvæga lokasprett á tímabilinu, eða hvernig lítur þú á það?

Okkur bráðvantaði leikmann eins og Gyrði Hrafn, mann með alvöru líkamsbyggingu, hraða, kraft, styrk, áræðni og sjálfstraust. Hann er með rosalega jákvæða orku og okkur vantaði þannig týpu. Hann og Aron Einar hefðu verið stórkostleg blanda inn í hópinn en því miður þá fór Aron eftir aðeins einn leik.

Svo fengum við Kevin Vazquez sem við vorum búnir að grennslast fyrir um og vissum að væri stríðsmaður sem hefði farið langt á sínum ferli á Spáni með því að vera með frábært hugarfar og jákvæða orku. Hann hefur sýnt það og hefur átt nokkrar stórkostlegar frammistöður sem hafa farið svolítið undir radarinn.

Einar Freyr Halldórsson er einn lykilmanna Þórsliðsins þótt ungur sé að árum. Hann fagnaði 18 ára afmæli síðastliðinn miðvikudag – þegar Þór vann KA á Íslandsmótinu í handbolta. Hér eru Einar og Daninn André Rømer þegar Akureyrarfélögin mættust á nýja Greifavellinum í lok júlí. Mynd: Ármann Hinrik

Stoltir að hafa fengið hann í hópinn

„Þorri Ingólfsson er frábær búbót í framlínuna. Hann er taktískt besti ungi leikmaðurinn sem ég hef kynnst, er með mjög mikla fótboltagreind, er mjög góður á síðasta þriðjungi, frábær í vörn og frábær persónuleiki sem ég hef svakalega mikla trú á. Við erum stoltir af því að hafa fengið hann inn í þennan hóp með sína jákvæðni og hugarfar.

Viktor Bertomeu er frábær drengur sem við höfum verið ánægðir með. Hann hefur ekki alltaf náð að sýna sitt rétta andlit inni á vellinum, hann er að fara að eignast barn á Spáni og það truflar hann líklega aðeins. En hann er tilbúinn til að leggja allt í sölurnar fyrir liðið sem er mjög gott.

Loks fengum við Harald Brynjarsson frá Víkingi sem spilar með 2. flokki en hefur æft með okkur og kemur með mikla orku inn í hópinn og á æfingasvæðið. Það er mjög spennandi leikmaður fyrir framtíðina og við erum mjög ánægðir með að hafa klófest hann.

Það var mjög mikilvægur liðsauki að fá þessa menn inn, og gaf okkur rosalega innspýtingu fyrir seinni hluta mótsins. Eins eiga leikmennirnir sem voru fyrir skilið hrós, það er ekki nóg að fá nýja leikmenn, því þeir sem eru fyrir þurfa að taka á móti þeim og koma þeim inn í hlutina, og láta þeim líða vel svo þeir geti sýnt sitt besta. Það sýnir mikinn styrk hjá leikmannahópnum hvernig það hefur gengið, og eins má þakka öllum þeim sem hafa komið að þessu hjá félaginu fyrir hve vel þessum leikmönnum hefur liðið eftir að þeir komu til okkar. Það hefur verið frábært.

Sigurður þjálfari á hliðarlínunni þegar KA og Þór gerðu markalaust jafntefli í lok júlí á nýja Greifavellinum þar sem félögin mætast á ný í kvöld. Mynd: Ármann Hinrik

Ekkert fararsnið á okkur

Þú ert á þínu þriðja ári hjá Þór og með samning í tvö ár til viðbótar, þannig að þú ert ekkert á förum frá Akureyri í bráð, eða hvað?

Ég flutti hingað strax og ég var ráðinn þjálfari hjá Þór, bý hérna með konu og barn og það er ekkert fararsnið á okkur. Þeim líður rosalega vel hérna og mér líka. Ég er í frábæru sambandi við leikmannahópinn, í frábæru sambandi við stjórn og flesta stuðningsmenn, þannig að við erum ánægð og ég vona að fólkið hérna sé líka ánægt með mig.

Eins og staðan er þá er ég mjög spenntur fyrir komandi tímum og fyrir Þór sem fótboltafélagi. Við erum þessa dagana að spila í Evrópukeppni unglinga með 2. flokkinn okkar og starfið sem er unnið í kringum hann er á mjög háu gæðastigi.

Ég sé ekkert annað en að Þórsarar geti verið mjög spenntir fyrir framhaldinu, sama hvernig þetta tímabil endar. Það verða alltaf bjartir tímar framundan, það er góð stjórn hjá félaginu, sterkur kjarni, fjölmargir uppaldir strákar hafa fengið tækifæri til að spila í efstu deild og svo er að koma upp fullt af ungum strákum sem ég myndi halda að verði kjarni Þórsliðsins næstu árin.

Ég sé ekki hvar ætti að vera meira spennandi starf í gangi en það sem er í Þorpinu núna.

Sigurður fylgist með sínum mönnum á æfingu síðsumars. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Nú þurfum við að gera þetta líka

Sigurður fylgdist eins og flestir aðrir Akureyringar með því sem gerðist í KA-heimilinu á miðvikudagskvöldið þegar Þór lagði KA í hörkuleik í úrvalsdeild karla í handbolta.

Já, ég horfði á leikinn heima, í ekki nægilega góðri útsendingu, en var mjög spenntur og stoltur af því að vera Þórsari. Ég kem oft á leiki í handboltanum hjá Þór og finnst það gaman. Það er allt öðruvísi orka í handboltanum en fótboltanum og það er gaman að upplifa hana. Ég held að tengslin á milli leikmanna félagsins í fótbolta og handbolta séu fín og veit að strákarnir í mínu liði eru duglegir að mæta á handboltaleikina og held að það sé gagnkvæmt.

Fyrir okkur er frábært að handboltastrákarnir hafi unnið KA og nú þurfum við að gera þetta líka, við þurfum að sýna góða frammistöðu og ná í góð úrslit,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson.