Fara í efni
Íshokkí

Víkingur þurfti að hafa fyrir sigri gegn KA

Gylfi Þór Sigurðsson (nr. 10) kom Víkingum yfir með marki úr vítaspyrnu þegar um korter var eftir af leiknum og fagnaði að vonum vel. Mynd: Ármann Hinrik.

KA beið lægri hlut gegn Íslandsmeisturum Víkings í 2. umferð efstu deildar karla, Bestu deildinni, í dag. Þrátt fyrir að Víkingur væri talsvert meira með boltann gáfu KA-menn fá færi á sér og ef ekki hefði verið fyrir vítaspyrnudóm korteri fyrir leikslok er aldrei að vita nema KA hefði náð stigi úr leiknum. Víkingar skoruðu úr vítinu og bættu síðan við öðru marki undir lokin. Lokatölur 2:0 fyrir Víking og KA er því án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Rétt eins og gegn Stjörnunni í fyrstu umferð voru KA-menn ekki alveg með á nótunum fyrsta hálftímann eða svo. Víkingar réðu gangi leiksins en komust samt ekki í nein afgerandi markfæri. Smám saman jafnaðist leikurinn eftir að KA fór að veita meiri mótspyrnu, án þess þó að drægi til tíðinda, og staðan var markalaus í hléi.

Oliver Heiðarsson spreytti sig í fyrsta skipti í KA-búningnum – lék síðasta hálftímann. Elías Már Ómarsson sem þarna sækir að Oliver gerði seinna mark Víkings í lokin. Mynd: Ármann Hinrik

Víkingar brutu ísinn með marki úr vítaspyrnu

Seinni hálfleikur þróaðist á svipaðan hátt, Víkingar voru meira með boltann án þess að ná að skapa sér einhver tækifæri. En ísinn var loks brotinn á 76. mínútu, þegar Víkingar sendu boltann inn fyrir vörn KA úr dómarakasti og Valdimar Þór Ingimundarson var andartaki á undan Steinþóri markverði í boltann og Steinþór felldi hann í kjölfarið. Vítaspyrna dæmd og Gylfi Þór Sigurðsson skoraði úr henni af öryggi.

Víkingar gerðu síðan endanlega út um leikinn á 87. mínútu þegar varamaðurinn Elías Már Ómarsson skallaði aukaspyrnu Helga Guðjónssonar laglega í netið. KA-menn þurftu því aftur að játa sig sigraða á heimavelli en vissulega hafa andstæðingarnar verið sterkir. Engu að síður hefur KA-liðið staðið uppi  í hárinu á bæði Stjörnunni og Víkingi og með smáheppni hefðu þeir alveg getað fengið stig úr báðum leikjum.

Gylfi Þór Sigurðsson og KA-maðurinn Rodri í leiknum í dag. Mynd: Ármann Hinrik

Hallgrímur Mar og Sveinn Margeir ekki með

Meiðsli eru að setja strik í reikninginn hjá KA og meðal annars var Hallgrímur Mar Steingrímsson ekki í leikmannahópi KA vegna smávægilegra meiðsla. Líklega eru þeir teljandi á fingrum annarrar handar leikirnir sem Hallgrímur hefur misst af vegna meiðsla undanfarinn áratug eða svo. Birgir Baldvinsson meiddist eftir 25 mínútna leik í dag og þurfti að fara af velli og Valdimar Logi Sævarsson fór sömu leið undir lok leiks. Þá var Sveinn Margeir Hauksson ekki í leikmannahópi KA í dag, en hann er í láni frá Víkingi. Nýjasti leikmaður KA, Oliver Heiðarsson, var hins vegar í leikmannahópnum og spilaði síðasta hálftímann.

Næsti leikur KA er gegn ÍA á Akranesi næstkomandi miðvikudag.

Leikskýrslan á vef KSÍ