Íshokkí
Þór og KA töpuðu bæði í 2. umferðinni
17.04.2026 kl. 23:00
Þórsarinn Sigfús Fannar Gunnarsson með boltann á KR-vellinum í kvöld. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Akureyrarfélögin töpuðu bæði í kvöld þegar 2. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu fór fram. KA-mennn fengu Íslandsmeistara Víkings í heimsókn og töpuðu 2:0 en Þórsarar mættu KR-ingum í Reykjavík og þar voru gerð sjö mörk – KR vann 5:2.
Umfjöllun um Þórsleikinn bíður til morguns af óviðráðanlegum orsökum en hér má sjá grein um leikinn á Greifavellinum:
Víkingur þurfti að hafa fyrir sigri á KA

Víkingurinn Erling Agnarsson í baráttu um boltann við KA-manninn Danijel Dejan Djuric. KA-maðurinn til vinstri er Jeppe Pedersen. Mynd: Ármann Hinrik