Fara í efni
Íshokkí

Færeysk línukona til liðs við KA/Þór

Færeyska línukonan Agatha Kjærbek Djurhuus hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleikslið KA/Þórs. Hún kemur til liðsins frá færeyska liðinu Vágs Bóltfelag (VB), þar sem hún hefur leikið fram til þessa.

Agatha er 19 ára gömul og hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í lykilhlutverki í meistaraflokksliði VB frá árinu 2022, segir í frétt á vefsíðu KA. Hún hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Færeyja og hefur auk þess verið að banka fast á dyr hins öfluga A-landsliðs sem vann meðal annars 35:30 sigur á liði Íslands á dögunum.