Byggðu líkama fyrir lífið
HEILSA – 19
Við höfum ekki fullkomna stjórn á því hvernig við eldumst. Lífið er einfaldlega þannig að við förum í gegnum alls konar tímabil þar sem líkaminn breytist, við höfum misjafna orku, meiðumst, veikjumst eða þurfum að takast á við nýjar áskoranir. En við höfum þó oft mun meiri áhrif á það hvernig okkur líður og hvernig líkaminn þjónar okkur til lengri tíma en við gerum okkur grein fyrir.
Við erum gjörn á að leita að einni lausn sem á að breyta öllu. Nýju æfingaprógrammi, sex vikna átaki eða flýtileið að betri heilsu og langlífi. Á meðan gleymum við oft grunninum. Við gleymum að spyrja hvort við sofum nóg, hreyfum okkur reglulega, byggjum upp styrk, hvílum okkur og gefum líkamanum tækifæri til að endurheimta sig. Það eru einmitt þessir einföldu hlutir sem geta skipt gríðarlegu máli þegar litið er til margra ára, ekki bara næstu vikna.
Raunverulegar breytingar verða nefnilega sjaldnast til á stuttum tíma. Þær verða til með því sem við gerum aftur og aftur, ár eftir ár. Við ofmetum oft það sem ein hörkuæfing getur gert og vanmetum það sem góðar venjur geta gert á tíu árum.
Að byggja hraustan líkama fyrir lífið snýst ekki um að gera allt fullkomlega. Það snýst um að velja reglulega það sem þjónar líkamanum best. Að hreyfa sig. Byggja upp styrk sem nýtist í daglegu lífi. Halda í hreyfanleikann svo líkaminn geti gert það sem við biðjum hann um. Hvíla sig þegar þess þarf og hlusta þegar líkaminn lætur vita að eitthvað þurfi að breytast.
Þetta hljómar kannski ekkert sérstaklega stórkostlega. Það er miklu meira spennandi að tala um byltingarkenndar lausnir eða nýjustu heilsutrendin sem eiga að breyta öllu. En sannleikurinn er sá að það eru einmitt þessir einföldu hlutir sem safnast upp og gera það að verkum að líkaminn þjónar okkur vel þegar árin líða.
Sjálf æfi ég fjölbreytt og reyni að huga vel að grunnþörfum mínum vegna þess að mig langar að eiga líkama sem ég get treyst. Ég geri sömu grunnatriðin aftur og aftur vegna þess að ég veit að þau virka. Ekki á einni viku eða einum mánuði, heldur yfir mörg ár. Fyrir mér er markmiðið ekki fullkominn líkami heldur líkami sem ég treysti. Líkama sem getur tekið þátt í lífinu, hvort sem það er að fara í fjallgöngu, leika við börnin mín, ferðast, stunda íþróttir eða einfaldlega njóta þess að geta hreyft mig án þess að líkaminn haldi aftur af mér.
Þegar allt kemur til alls erum við ekki að byggja líkama fyrir næsta sumar. Við erum að byggja líkama fyrir lífið og það er fjárfesting sem skilar sér, ekki bara til lengri tíma heldur skilar hún sér í því hvernig manni líður þegar maður vaknar á morgnana, hvernig maður hreyfir sig í dag og hvernig maður mun geta lifað lífinu eftir tuttugu ár.
Guðrún Arngrímsdóttir er ÍAK einkaþjálfari, jógakennari og markþjálfi með diplómu í jákvæðri sálfræði ásamt því að vera önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Pistlar hennar og Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur birtast annan hvern þriðjudag á akureyri.net.
Meðvituð hreyfing
Líkaminn geymir meira en við höldum
Hversu vel hreyfist þú? Getur verið að þig vanti hreyfanleika?
„Næring“ – meira en það sem er á disknum