Fara í efni
Handknattleikur

KA-menn sáu aldrei til sólar gegn Val

Gjafmildi, einu sinni sem oftar. Tönning markvörður brunaði út úr vítateignum til móts við sendingu Valsara, átti reyndar aldrei möguleika á að ná boltanum og Albin Skoglund lyfti boltanum snyrtilega yfir hann og í tómt markið. Mynd: Ármann Hinrik

KA fékk Val í heimsókn í efstu deild karla í knattspyrnu í kvöld og þurfti sárlega á sigri að halda til að komast upp úr fallsæti. Gengi liðsins hefur ekki verið upp á það besta í sumar og til dæmis hafa leikmenn liðsins einungis skorað 10 mörk í fyrstu 12 umferðunum. Til samanburðar voru Valsarar búnir að setja knöttinn 30 sinnum í mark andstæðinganna fyrir þennan leik og þeir héldu uppteknum hætti í kvöld. Unnu öruggan sigur á heimamönnum, skoruðu fimm mörk gegn tveimur – en reyndar voru flest Valsmörkin af ódýrari gerðinni.

Það hjálpaði KA ekki í baráttunni við markavél Valsara að fyrirliðinn Ívar Örn Árnason var í leikbanni í þessum leik. Leikurinn fór rólega af stað og lítið gerðist þangað til á 10. mínútu þegar heimamenn færðu Völsurum mark á silfurfati. Sending Hrannars Björns Steingrímssonar rataði beint á Lúkas Loga Heimisson Valsara, sem var í góðu færi á vítateignum. Hann renndi boltanum hins vegar á Adam Ægi Pálsson sem var í enn betra færi og átti ekki í vandræðum með að skora.

Valsmenn komast í 2:0 með sjálfsmarki. Þegar boltinn kom inn á teig KA-manna eftir hornspyrnu hrökk hann í Ásgeir Sigurgeirsson og í netið.

Aðeins mínútu síðar sluppu heimamenn með skrekkinn þegar skot Lúkasar Loga hafnaði í stönginni. Enn leið ekki nema mínúta þangað til gestirnir tvöfölduðu forystuna. Hornspyrna Adams Ægis fór í hóp þriggja KA-manna á markteignum og líklega fór knötturinn í netið af Ásgeiri Sigurgeirssyni. Ekki síður klaufalegt mark en það fyrra.

Valsmenn tóku öll völd á vellinum eftir þetta og fengu mörg góð tækifæri til að auka við forystuna. Títtnefndur Lúkas Logi komst í gott færi eftir hálftíma leik en skot hans hafnaði í höfði Tönning markvarðar af stuttu færi, sem vankaðist um stund og þurfti aðhlynningu. Markahæsti maður deildarinnar, Patrick Pedersen, minnti á sig og komst tvisvar í gott færi. Skallaði í stöngina úr öðru þeirra og nokkrum mínútum síðar hafnaði þrumuskot Jónatans Inga Jónssonar líka í stönginni.

KA-menn voru því stálheppnir að vera ekki 4-5 mörkum undir þegar leið að leikhléi og það kom því eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar þeir minnkuðu muninn í lok hálfleiksins með sínu fyrsta skoti að marki. Rodri lagði þá fyrirgjöf Hrannars Björns snyrtilega fyrir Bjarna Aðalsteinsson, sem hamraði knöttinn í netið frá vítateig. Munurinn því einungis eitt mark í hléi og heimamenn nokkuð óvænt ennþá inni í leiknum.

Bjarni Aðalsteinsson (77) minnkar muninn fyrir KA rétt fyrir lok fyrir hálfleiks. Markið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti enda fyrsta skot KA á mark.

Og það sýndi sig strax í upphafi síðari hálfleiks að allt gat gerst, þegar varamaðurinn Jóan Símun átti frábært viðstöðulaust skot sem Frederik Schram varði stórkostlega í horn.

Jafnræði var með liðunum eftir þetta en á 70. mínútu bættu Valsmenn við forskotið. Líkt og með fyrstu mörkin tvö var þetta af ódýrustu sort. Tönning markverði mistókst að handsama fyrirgjöf Adams Ægis úr hornspyrnu, boltinn hafði viðkomu í þverslánni og datt fyrir fætur Tómasar Bents Magnússonar sem stóð nánast á marklínunni og átti ekki vandræðum með að klára dæmið.

Frederik Schram ver skot KA-mannsins Jóan Símun með tilþrifum snemma í seinni hálfleik. 

Enn var nóg eftir af gestrisni og gjafmildi heimamanna og þremur mínútum síðar kom fjórða mark gestanna, eftir að Tönning brunaði út úr vítateignum til móts við sendingu Valsara. Hann átti hins vegar aldrei möguleika á að ná boltanum og varamaðurinn Albin Skoglund lyfti boltanum snyrtilega yfir hann og í tómt markið.

Og Valsmenn voru ekki hættir. Á 86. mínútu spiluðu þeir sig laglega gegnum vörn KA og í stað þess að varnarmenn hreinsuðu boltann í burtu féll hann fyrir fætur Stefáns Gísla Stefánssonar sem lagði hann snyrtilega framhjá Tönning í markinu - aðeins nokkrum sekúndum eftir að hafa komið inn á sem varamaður. 5:1.

KA náði að klóra í bakkann í uppbótartíma þegar Hans Viktor Guðmundsson átti skot utan vítateigs sem rataði gegnum allan pakkann í teignum og endaði í bláhorninu.

Öruggur Valssigur í þessum leik – 5:2 – og Valsarar eru búnir að vera á miklu skriði undanfarið. Þrátt fyrir að frammistaða KA hafi verið talsvert skárri eftir hlé í kvöld vantar mikið upp á að liðið nái að ógna marki andstæðinga sinna að einhverju ráði. Og það er áhyggjuefni, þegar liðið er í fallsæti og hvert einasta stig er lífsnauðsynlegt í baráttunni.

Leikskýrslan

Staðan í deildinni

Boltinn á leið í mark Vals í blálokin eftir skot Hans Viktors Guðmundssonar (28) af löngu færi.