Fara í efni
Handknattleikur

KA fær Val í heimsókn, Þór úti gegn Fjölni

Varnarjaxlar! KA-maðurinn Hans Viktor Guðmundsson, til vinstri, á í höggi við Valsmenn á heimavelli í kvöld en Þórsarinn, Yann Emmanuel Affi, tekst á við leikmenn Fjölnis í Reykjavík. Myndir: Ármann Hinrik

Karlalið bæjarins í knattspyrnu leika bæði í kvöld, KA-menn á heimavelli í efstu deild Íslandsmótsins en Þórsarar í Reykjavík í næst efstu deild.

KA seig niður í fallsæti Bestu deildarinnar í 12. umferð þegar liðið beið ósigur fyrir Víkingum á heimavelli á sunnudaginn var. KA er í 11. sæti með 12 stig úr 12 leikjum, en þó eru aðeins fimm stig upp í efri hluta deildarinnar; Afturelding er í sjötta sæti með 17 stig, en reyndar mun betri markatölu en KA.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    Greifavöllur kl. 18:30
    KA - Valur

Valur vann stórsigur á KR á mánudagskvöld, 6:1, og eru Valsarar nú í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig.

KA og Valur mættust að Hlíðarenda 23. apríl, í þriðju umferð, og sunnanmenn höfðu þá betur, 3:1. Ásgeir Sigurgeirsson gerði mark KA þann dag. Hann er markahæstur KA-manna í deildinni í sumar, hefur gert fjögur mörk.

Þórsarar í Grafarvogi

Þór sækir Fjölni heim í 10. umferð deildarinnar í dag. Þór er með 14 stig í fjórða sæti enFjölnir hefur átt í basli það sem af er sumri og er í næstneðsta sæti deildarinnar með sex stig, jafnmörg stig og Selfyssingar sem eru í botnsætinu

  • Lengjudeild karla í knattspyrnu
    Fjölnisvöllur kl. 18:00
    Fjölnir - Þór

Þórsarar skriðu upp um nokkur sæti með sigri á Selfyssingum í Boganum, í níundu umferð Lengjudeildarinnar um síðustu helgi. Keppni í deildinni er mjög jöfn því þremur stigum munar á Þórsurum í fjórða sæti og Grindvíkingum í áttunda sæti. Þá eru sex stig frá fjórða sæti upp í það efsta. Njarðvík komst á toppinn í gærkvöldi með 3:1 sigri á nágrönnum sínum í liði Keflavíkur. Njarðvíkingar eru þar með búnir með 10 leiki, en ÍR-ingar eru einu stigi á eftir og eiga leik við Grindvíkinga í kvöld til góða.