Fara í efni
Gervigreind

Toppslagur Þórsara og Njarðvíkinga í dag

Ýmir Már Geirsson hefur leikið vel í stöðu vinstri bakvarðar undanfarið og Daninn Christian „Greko“ Jakobsen, til hægri, hefur smollið vel inn í Þórsliðið. Greko hefur tekið þátt í sex leikjum, fimm þeirra hafa unnist og einn endað með jafntefli. Myndir: Ármann Hinrik

Þórsarar fá Njarðvíkinga í heimsókn í dag í sannkölluðum toppslag Lengjudeildarinnar, næst efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu. Þegar 18 umferðum er lokið af 22 er lið Njarðvíkur efst með 37 stig og Þórsarar í öðru sæti með 36 stig.

Leikurinn hefst klukkan 16.00 í Boganum. Gera má ráð fyrir fjölmenni þar og mikilli stemningu því Þórsarar hafa verið á góðri siglingu undanfarið; þeir töpuðu síðast fyrir Þrótti 3. júlí en hafa síðan unnið sex leiki og gert eitt jafntefli. Þór vann ÍR 1:0 á útivelli í síðustu umferð, og komst þar með upp fyrir ÍR, en lið Njarðvíkur tapaði heima fyrir Þrótti í 18. umferðinni

  • Lengjudeild karla í knattspyrnu, 19. umferð
    Boginn kl. 16
    Þór - Njarðvík

Tveir Þórsarar verða fjarri góðu gamni í dag; miðjumaðurinn Ibrahime Balde, algjör lykilmaður hjá Þór, og hægri bakvörðurinn Juan Guardia Hermida eru báðir í leikbanni. Þeir fengu áminningu þegar Þór sigraði Völsung á dögunum – fjórða gula spjald hvors um sig í sumar, og þeir fóru þar með í eins leiks bann.

Njarðvík vann fyrri leik þessara liða á heimavelli um miðjan júní, 3:1.

Lokaspretturinn í deildinni verður væntanlega æsispennandi. Efsta liðið að loknum 22 umferðum vinnur sér sæti í Bestu deildinni eins og áður hefur komið fram, og liðin í 2.-5. sæti fara í umspil um annað laust sæti í efstu deild. Nú eru 12 stig í pottinum og sex lið sem eiga enn möguleika á að fara upp.

Leikir sem efstu liðin eiga eftir, að 19. umferðinni í dag meðtalinni:

  • Njarðvík 37 stig – Þór (ú), Leiknir (h), Keflavík (ú), Grindavík (h)
  • Þór 36 stig  Njarðvík (h), Selfoss (ú), Fjölnir (h), Þróttur (ú)
  • Þróttur 35 stig  Selfoss (h), Fjölnir (ú), HK (ú), Þór (h)
  • ÍR 33 stig  Leiknir (ú), Keflavík (h), Grindavík (ú), Fylkir (h)
  • HK 31 stig  Fjölnir (ú), Fylkir (h), Þróttur (h), Völsungur (ú)
  • Keflavík 28 stig  Völsungur (h), ÍR (ú), Njarðvík (h), Selfoss (ú)

Staðan í deildinni

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16

Magnús verkefnastjóri í gervigreind við HA

Skapti Hallgrímsson skrifar
03. desember 2024 | kl. 15:40

Stafræn ragnarök: Opinberun nýrra tíma

Magnús Smári Smárason skrifar
19. nóvember 2024 | kl. 17:30

Lýðræði á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
30. október 2024 | kl. 11:45