Fara í efni
Gervigreind

Þór/KA tekur móti FHL í Boganum í dag

Sandra María Jessen, sem brosir breitt fyrir miðri mynd, gerði þrjú mörk í 5:2 sigri Þórs/KA á FHL í fyrri leik liðanna í sumar. Mynd: Ármann Hinrik

Þór/KA hefur gengið brösuglega að ná sér í stig eftir EM-hléið. Í dag er komið að heimaleik gegn nágrönnunum úr austri, FHL. Austfirðingar náðu sér í sín fyrstu stig í deildinni í sumar með sigri á Fram á heimavelli í síðustu umferð. Þór/KA sótti FH heim í Hafnarfjörðinn og tapaði þrátt fyrir að hafa skorað þrjú mörk, lokatölur 5-3 FH í vil.

Fyrir leik liðanna í dag er Þór/KA í 5. sætinu með 18 stig, en liðið missti Val upp fyrir sig í síðustu umferð. Fram undan hjá Þór/KA er barátta við að halda sér í efri hlutanum, en í 6. og 7. sæti deildarinnar eru Fram og Stjarnan með 15 stig. FHL þarf auðvitað einnig á stigunum að halda, reyndar öllum stigum sem í boði eru, því liðið er 11 stigum á eftir Tindastóli sem situr í 8. sæti deildarinnar.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 14. umferð
    Boginn kl. 18
    Þór/KA - FHL

Fyrri leikur Þórs/KA og FHL sem fram fór í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði snemma í maí endaði með 5-2 sigri Þórs/KA. Sandra María Jessen skoraði þrennu í þeim leik og þær Sonja Björg Sigurðardóttir og Karen María Sigurgeirsdóttir eitt mark hvor.

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16

Magnús verkefnastjóri í gervigreind við HA

Skapti Hallgrímsson skrifar
03. desember 2024 | kl. 15:40

Stafræn ragnarök: Opinberun nýrra tíma

Magnús Smári Smárason skrifar
19. nóvember 2024 | kl. 17:30

Lýðræði á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
30. október 2024 | kl. 11:45