Fara í efni
Gervigreind - pistlar

Kristnes: 7-daga deild enduropnuð að hluta

Kristnesspítali í Eyjafjarðarsveit, þar sem starfsemi endurhæfingardeildar SAk fer fram. Mynd: sak.is.

Fyrir áramót sendi Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) út ákall með það fyrir augum að reyna að manna þjónustu endurhæfingardeildar svo halda mætti úti 7-daga deild. Ákallið hefur skilað árangri að hluta og mun 7-daga deild verða opnuð á ný þann 7. febrúar. Starfsemin verður þó skert til að byrja með, á meðan áfram er unnið að fullmönnun deildarinnar. Að auki er þjónustustjóri deildarinnar að láta af störfum og hefur SAk auglýst þá stöðu lausa til umsóknar.

Í frétt á vef SAk kemur fram að í fyrstu verði 18 rými á deildinni, sem verður blanda af dagdeild, 5-daga legudeild og 7-daga legudeild. Sex rými verða á dagdeildinni og tólf á legudeildunum. Erla Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs SAk, segir í samtali við akureyri.net að enn vanti nokkuð upp á mönnun deildarinnar. „Ætlunin er að þjónusta alla hópa eins og mönnun leyfir. Eins og staðan er í dag erum við í þörf fyrir um 3-4 stöðugildi hjúkrunarfræðinga/hjúkrunarnema og stöðugildi sjúkraliða,“ segir Erla. Blandaða deildin verður fyrst um sinn rekin á einni hæð í stað tveggja.

Erla segir að á endurhæfingardeildinni séu alls 32 skilgreind rými á tveimur hæðum. Á annarri hæðinni eiga að vera 16 dagdeildarrými og á hinni hæðinni 8 rými á 5-daga deild og önnur 8 rými á 7-daga deild. „Við erum að leggja mikinn kraft í að reyna að bæta mönnun og eftir því sem það miðar fram munum við aðskilja legudeildina og dagdeildina og auka fjölda skjólstæðinga,“ segir Erla.

Auglýst eftir þjónustustjóra

Til viðbótar við þetta auglýsir SAk nú lausa stöðu þjónustustjóra endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónustu, sem er í raun yfirmaður starfseminnar á Kristnesi. Undir þjónustustjóra falla endurhæfingar- og öldrunarlækningar, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, félagsráðgjafaþjónusta, sálfræðiþjónusta, talmeinaþjónusta og endurhæfingardeild. Hann bera faglega, rekstrarlega og starfsmannalega ábyrgð á deildinni. Kristín Margrét Gylfadóttir er núverandi þjónustustjóri deildarinnar og lætur hún fljótlega af störfum.

Magnús Smári fjallar um gervigreind á mannamáli

Valur Sæmundsson skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
28. janúar 2026 | kl. 10:00

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16

Magnús verkefnastjóri í gervigreind við HA

Skapti Hallgrímsson skrifar
03. desember 2024 | kl. 15:40