Fara í efni
Gervigreind - pistlar

Dagar BSO taldir – bílstjórarnir til Hreyfils

Páll Jóhann Kristinsson leigubílstjóri við bíl sinn, þann fyrsta á Akureyri sem kominn er í búning Hreyfils. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Frá og með 1. maí næstkomandi munu leigubílstjórar BSO á Akureyri hefja akstur undir merkjum Reykjavíkurstöðvarinnar Hreyfils. Starfsemi BSO í núverandi mynd leggst af þó verður áfram hægt að panta bíl í gamla, góða símanúmerinu 461-1010.

Eins og kunnugt er þarf BSO að víkja með leigubílastöð sína úr miðbænum á Akureyri frá og með næstu mánaðamótum og framtíðarstarfsemi stöðvarinnar hefur því verið í nokkru uppnámi. Nú er það ljóst að áratugalöng saga BSO mun heyra sögunni til, um leið og húsið hverfur af vettvangi, en bílstjórarnir sextán ganga til liðs við leigubílastöðina Hreyfil.

Fyrsti leigubíllinn á Akureyri er þegar kominn í búning Hreyfils og næstu vikur munu þeir allir fá Hreyfils-merkingar, auk þess sem starfsmenn Múlaradíós munu setja upp fullkominn tæknibúnað í bílana og tengja þá við tölvukerfi Hreyfils. Frá og með 1. maí hefst starfsemi undir merkjum Hreyfils formlega á Akureyri. Hægt verður að panta bíl gegnum glænýtt Hreyfilsapp, auk þess sem símanúmer BSO flyst yfir á skiptiborð Hreyfils. Aðalnúmer Hreyfils – 5885522 – ættu flestir landsmenn að þekkja, eftir velheppnaðar auglýsingaherferðir.

Smári Ólafsson, stjórnarformaður BSO ehf., segir að rekstri BSO í núverandi mynd verði hætt og bílstjórarnir muni á næstunni finna sér húsnæði til að nota fyrir kaffistofu og afdrep fyrir bílstjórana. Ekki verði haldið áfram með sjoppurekstur og eldsneytissölu, eins og verið hefur hluti af rekstri stöðvarinnar í miðbænum til áratuga. Eins og akureyri.net greindi frá fyrir stuttu er gert ráð fyrir fjórum biðstæðum fyrir leigubíla syðst í Skipagötu.

Þórarinn Pétur Einarsson og Smári Ólafsson, stjórnarmenn BSO, Karl Ísleifsson frá Múlaradíó, Lárus Páll Erlingsson, stjórnarmaður BSO, Sverrir Þór Kristjánsson og Kjartan Halldór Einarsson, stjórnarmenn í Hreyfli, og Haraldur Axel Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hreyfils.

Magnús Smári fjallar um gervigreind á mannamáli

Valur Sæmundsson skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
28. janúar 2026 | kl. 10:00

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16

Magnús verkefnastjóri í gervigreind við HA

Skapti Hallgrímsson skrifar
03. desember 2024 | kl. 15:40