Fara í efni
Gervigreind - pistlar

„Akureyrarhlaupið er tilvalið fyrir alla“

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Akureyrarhlaupið fer fram annað kvöld, fimmtudagskvöldið 2. júlí nk., þar sem í boði verður að fara 5 km, 10 km, og 21,1 km, og er síðastnefnda vegalengdin jafnframt Íslandsmeistaramót í hálfmaraþoni.

„Það er ótrúlega gaman að sjá að Akureyrarhlaupið er að þróast út í að vera stemningshlaup fyrir hlaupara en líka fjölbreytta hópa og vinnustaði. Þetta er akkúrat hlaup sem er tilvalið fyrir alla, hvort heldur sem það eru þau sem þurfa aðeins að dusta rykið af hlaupaskónum eða eru með þá pússaða allt árið um kring,“ segir Ingvar Már Gíslason, einn skipuleggjenda hlaupsins.

Að sögn Ingvars eru nú þegar skráðir ríflega hundrað þátttakendur og athygli hans vekur að fjölbreyttir hópar taka þátt, til dæmis er þónokkur hópur starfsfólks frá Sjúkrahúsinu á Akureyri, atNorth og Slökkviliði Akureyrar skráður til keppni, svo og hress hópur frá æfingastöðinni Training for Warriors.

Styrkja gott málefni

Ingvar Gíslason segir atNorth koma að hlaupinu „með mjög skemmtilegum og öflugum hætti, fyrir utan það að vera aðalstyrktaraðili hlaupsins þá er fyrirtækið líka að gefa vegleg útdráttarverðlaun og þar að auki að veita góðu málefni styrk, en það fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök sem er með flesta þátttakendur í hlaupinu fær að velja hvert málefnið verður,“ segir hann. „Við viljum þakka atNorth kærlega fyrir að gefa okkur byr undir báða vængi til að geta gert þennan viðburð svona veglegan og skemmtilegan. Þá eru líka fleiri góð fyrirtæki sem gefa útdráttarverðlaun og auðvitað fjöldi sjálfboðaliða – sem auðvitað skiptir miklu máli. Mestu máli skiptir þó auðvitað bara að sem flestir mæti og njóti,“ segir Ingvar.

Rás- og endamark er við menningarhúsið Hof. Hlaupið er um Eyrina og meðfram ströndinni í átt að flugvellinum „svo hlaupaleiðin er marflöt og vænleg til góðra afreka,“ segir í tilkynningu frá UFA Eyrarskokki.

Um menntakerfið á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Magnús Smári fjallar um gervigreind á mannamáli

Valur Sæmundsson skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
28. janúar 2026 | kl. 10:00

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16