Fara í efni
Gamla íþróttamyndin

„Vinabæjadrengir“ á Akureyri árið 1975

Úr myndasafni Íslendings/Gísli Sigurgeirsson

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 126

Íþróttamót akureyrska ungmenna og jafnaldra þeirra frá vinabæjum Akureyrar á hinum Norðurlöndunum voru fastur liður á árum áður. Þar reyndu með sér strákar og stelpur, 13 og 14 ára, annað hvert ár í bæjunum til skiptis; á Akureyri, í Álasundi í Noregi, finnsku borginni Lahti, Randers í Danmörku og Västerås í Svíþjóð.

Gamla íþróttamyndin að þessu sinni er tekin á æfingu knattspyrnudrengja í íþróttaskemmunni veturinn 1974-1975, í aðdraganda vinabæjamóts sem fram fór í Lahti í ágúst 1975.

Aftari röð frá vinstri: Davíð Ómar Þorsteinsson (Þór), Guðmundur Baldvin Guðmundsson (KA), Hallur Stefánsson (KA), Gunnar Berg Gunnarsson (KA), Gunnar Þorsteinsson (KA), Anton Haraldsson (KA), Gunnar Gíslason (KA), Rúnar Steingrímsson (Þór), Aðalsteinn Jóhannsson (KA), Magnús Helgason (Þór) og Þröstur Guðjónsson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Haraldur Pálsson (Þór), Haraldur Ólafsson (Þór), Reynir B. Eiríksson (Þór), Tómas Karlsson (Þór), Jón Albertsson (Þór), Ormarr Örlygsson (KA), Gretar Örlygsson (KA), Jónas Róbertsson (Þór), Friðrik Stefánsson (KA), Erlingur Kristjánsson (KA) og Jóhann G. Sævarsson (Þór).