Fara í efni
Gamla íþróttamyndin

Þórsarar gegn Val að Hlíðarenda 1985

Mynd: Skapti Hallgrímsson

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 141

Stelpurnar í Þór/KA fögnuðu sigri á Víkingum í lokaumferð efstu deildar Íslandsmótsins í fótbolta og héldu þar með sæti sínu í Bestu deildinni. Af því tilefni er hér dregin fram mynd sem tekin var fyrir rúmu 41 ári – sunnudaginn 23. júní 1985, í leik Vals og Þórs á Valsvellinum að Hlíðarenda í 1. deild Íslandsmótsins.

Þarna berjast um boltann Þórsarinn Halla Kr. Halldórsdóttir, sú með stóra KEA merkið á bringunni, Valsarinn Ragnhildur Skúladóttir og Eva Birgitta Eyþórsdóttir, markvörður Þórs. Halla er móðir Birkis Bjarnasonar, leikjahæsta landsliðsmanns Íslands frá upphafi. Þórsarinn í fjarska er Valgerður Jóhannsdóttir en akureyri.net veit ekki nafn Valsarans við hlið Valgerðar.

Þórsarar spiluðu tvo leiki þessa helgi; unnu KR-inga 2:1 vestur í bæ á laugardeginum þar sem Eydís Benediktsdóttir og Kolbrún heitin Jónsdóttir skoruðu en Valsmenn fögnuðu hins vegar sigri þennan sunnudag; leikurinn fór 4:0 en sá sigur var „of stór miðað við gang leiksins. Þórsarar áttu síst minna í fyrri hálfleiknum og fékk liðið þá góð marktækifæri sem fóru forgörðum,“ sagði í Morgunblaðinu.

Fyrir leikinn var Þór með fullt hús stiga; þrír leikir voru að baki og höfðu allir unnist. Valur hafði hins vegar tapað öllum þremur leikjunum en komst á blað með sigrinum á Þór.

Þórdís Sigurðardóttir var aðalmarkvörður Þórs á þessum tíma en meiddist í leiknum gegn KR. Hún byrjaði þó gegn Val en „stakk við þegar frá byrjun og varð aö fara út af í síðari hálfleik,“ sagði Mogginn. Skiljanlegt var að þjálfari Þórs hafi ákveðið að láta á það reyna hvort Þórdís gæti leikið því Eva Birgitta, varamarkvörður, var aðeins 12 ára; varð ekki 13 ára fyrr en í september þetta ár! Eva tók ekki þátt í deildarleik aftur fyrr en 1989 og var þá orðin aðalmarkvörður liðsins. Hún tók alls þátt í 26 deildarleikjum með Þór og lék síðar 24 sinnum með FH í næst efstu deild.