Fara í efni
Gamla íþróttamyndin

Guðjón Þórðarson og sunnanmenn hans í KA

Guðjón Þórðarson, einn sigursælasti knattspyrnuþjálfari Íslands, lést aðfararnótt föstudagsins 13. nóvember 71 árs að aldri. Guðjón markaði djúp spor í íþróttasögu Akureyrar sem þjálfari KA þegar félagið varð Íslandsmeistari karla árið 1989; það var fyrsti Íslandsmeistaratitill Akureyrarliðs í meistaraflokki í knattspyrnu og sá eini hingað til í karlaflokki.

Skagamaðurinn Guðjón lék um árabil með ÍA og varð fimm sinnum Íslandsmeistari sem leikmaður. Hann hóf þjálfaraferilinn 1987 með ÍA en var að því tímabili loknu ráðinn þjálfari KA. Gamla myndin að þessu sinni var tekin í mars árið 1988 á fyrsta gervigrasvelli Íslendinga í Laugardalnum í Reykjavík. Þarna er Guðjón ásamt nokkrum lærisveina sinna hjá KA en helmingur leikmannahópsins var þá við nám eða önnur störf sunnan heiða.

Morgunblaðið greindi frá því í mars að KA-menn á heimaslóðum nyrðra æfðu undir leiðsögn Þorvaldar Þorvaldssonar en Guðjón kæmi á æfingar í Reykjavík frá heimili sínu á Akranesi.

Á myndinni eru, í aftari röð frá vinstri: Guðjón Þórðarson, Stefán Ólafsson, Arnar Bjarnason, Anthony Karl Gregory, Valgeir Barðason og Örn Viðar Arnarson. Fyrir fram eru, frá vinstri, Eggert Sverrisson, Þorvaldur Örlygsson og Gauti Laxdal. „Eggert er Framari sem skipti í ÍR fyrr í vetur en nú eru allar líkur á því að hann gangi til liðs við KA-menn áður en langt um líður,“ sagði í frétt Morgunblaðsins en svo fór reyndar að Eggert lék aldrei með KA.

„Fjarverandi er myndin var tekin voru Bjarni Jónsson, Steingrímur Birgisson og Friðfinnur Hermannsson. Það eru því ellefu leikmenn KA, eða heilt byrjunarlið, sem æfir hér syðra alla jafna!“ sagði í Morgunblaðsfréttinni.