Fara í efni
Gamla íþróttamyndin

Þór og KA eigast við í Skemmunni um 1980

Mynd: Skapti Hallgrímsson

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 145

Þórsarar taka senn á móti KA-mönnum í efstu deild Íslandsmótsins í handbolta, Olísdeildinni, og því er ekki úr vegi að gamla íþróttamyndin þessa helgina sé úr viðureign Akureyrarfélaganna um 1980. Einu sinni sem oftar er rykið dustað af mynd sem tekin var í Íþróttaskemmunni á Oddeyri, Skemmunni eins og hún var jafnan kölluð. 

Þórsarinn sem þarna skýtur að marki er Arnar Guðlaugsson. Þrír KA-menn reyna að komst fyrir skotið, Jón Árni Rúnarsson er einn þeirra en ómögulegt að fullyrða um hina. Magnús Gauti Gautason stendur í markinu. Lengst til vinstri er KA-maðurinn Einar Eyland og næstir honum Þórsararnir Aðalsteinn Sigurgeirsson og Ragnar Sverrisson. 

Lengst til hægri á myndinni, númer 9, er Sigurður Sigurðsson sem lék með Þór þrjá vetur (1978-1981) en hafði áður leikið jafn lengi með KA (1975-1978). Áður en stórskyttan Sigurður mætti með handboltaskóna til Akureyrar lék með hann liði Ólafsfirðinga og Völsungi á Húsavík. Sigurður var síðar formaður handknattleiksdeildar KA, þegar Alfreð Gíslason sneri heim sem leikmaður og þjálfari sumarið 1991 eftir glæsilegan feril erlendis. Sigurður stýrði m.a. því „kraftaverki“ þegar íþróttahús KA reis á undraskömmum tíma sama ár og var Sigurður byggingameistari hússins. Sonur hans, Sigurður Ringsted, leikur nú með Þór.