Fara í efni
Gamla íþróttamyndin

Líf og fjör 1981 með Andrési – MYNDIR

Átta ára meistari! Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði á efsta palli á Andrésar andar leikunum 1981, þegar hann sigraði bæði í svigi og stórsvigi. Mynd: Reynir Bjarnar Eiríksson

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 123

Afmælissýning í tilefni 50 ára afmælis Andrésar andar leikanna í skíðaíþróttum verður í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag frá kl. 13.00 til 14.30. Það verður saga leikanna rifjuð upp í myndum, viðtölum og heimildum frá liðnum árum.

Meira um sýninguna neðar – fyrst eru hér nokkrar myndir úr fórum ritstjóra akureyri.net sem fylgdist grannt með gangi mála fljótlega eftir að Andrésar andar leikarnir hófust, sem fréttaritari íþróttadeildar Morgunblaðsins á Akureyri.

Í tilefni afmælisleikanna verður „svindlað“ hér í þessum vinsæla lið – gömlu íþróttamyndinni – og dregnar fram nokkrar myndir; hér er horft 45 ár um öxl; myndirnar eru allar frá Andrésar andar leikunum vorið 1981, þegar leikarnir fóru fram í sjötta skipti. Gjörið svo vel!


Akureyringurinn Hilmir Valsson í svigkeppninni. Hann sigraði bæði í svigi og stórsvigi í flokki 12 ára.

Jón Ingvi Árnason (Óðinssonar) vann tvöfalt í 10 ára flokki; sigraði bæði í svigi og stórsvigi.

Gréta Björnsdóttir frá Akureyri keppti í 12 ára flokki og fékk tvenn verðlaun; gull í stórsvigi og silfur í svigi.

Átta ára meistari! Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði vann bæði svig og stórsvig. Myndin er tekin þegar verðlaun voru veitt fyrir stórsvigið – til hægri er Akureyringurinn Magnús Karlsson sem varð annar og til vinstri Arnar Bragason frá Húsavík sem lenti í þriðja sæti. 16 árum eftir að þessi mynd var tekin náði Kristinn þeim stórkostlega árangri að verða í 2. sæti á heimsbikarmóti í Park City í Bandaríkjunum, aðeins einum hundraðasta á eftir sigurvegaranum, Thomas Stangassinger frá Austurríki. Kristinn var þremur hundruðustu úr sekúndu á undan Norðmanninum Finn Christian Jagge sem lenti í þriðja sæti. Kristinn varð vitaskuld margfaldur Íslandsmeistari og keppti á fernum Ólympíuleikum; í Albertville 1992, Lillehammer 1994, Nagano 1998 og Salt Lake City 2002.

  • Upphaflega var ranghermt hér að Norðmaðurinn Jagge hefði unnið mótið í Park City. Beðist er velvirðingar á mistökunum.

Ásta Sigríður Halldórsdóttir frá Bolungarvík fékk gullverðlaun í svigi og silfur í stórsvigi í 10 ára flokki 1981. Hún varð margfaldur Íslandsmeistari í fullorðinsflokki og Ólympíufari; keppti á Ólympíuleikunum í Albertville árið 1992 þar sem hún var fánaberi íslenska hópsins, og aftur í Lillehammer 1994. Þetta er ekki prentvilla! Leikarnir fóru fram með tveggja ára millibili þarna af sérstökum ástæðum. Ásta varð í 20. sæti í svigi og 23. sæti í stórsvigi í Lillehammer.

Kristín Hilmarsdóttir frá Akureyri fékk gullverðlaun í svigi 11 ára og brons í stórsvigi. 

Harpa Hauksdóttir (Jóhannssonar) sigraði bæði í svigi og stórsvigi á leikunum 1981 í flokki sjö ára. Hún varð margfaldur Íslandsmeistari í fullorðinsflokki.

Aðalsteinn Árnason frá Akureyri á fullri ferð í sviginu þar sem hann varð í 5. sæti í flokki 12 ára.


Á sýningunni í Íþróttahöllinni verður ljósmyndasýning sem Hörður Geirsson safnvörður Minjasafnsins á Akureyri hefur tekið saman. Myndirnar endurspegla sögu leikanna á síðustu 50 árum, þróun þeirra og vöxt. Einnig verður sýnd heimildamynd með texta eftir Hermann Sigtryggsson og Kristrúnu Lind Birgisdóttur og myndum frá Herði.

Sýnd verða viðtöl við Ívar Sigmundsson, fyrrum formann Skíðafélags Akureyrar og forstöðumann Hlíðarfjalls, og Fjalar Úlfarsson, núverandi formann Andrésarnefndarinnar. Þá verður einnig hægt að skoða blaðaúrklippur og annað efni sem varpar ljósi á sögu og þróun leikanna.

Sýningin er opin öllum, en sérstaklega eru fyrrum keppendur, fjölskyldur og sjálfboðaliðar Andrésarleikanna boðnir velkomnir til að koma saman, rifja upp góðar minningar og fagna þessum merka áfanga,“ segir í tilkynningu frá Andrésar andar nefndinni. „Fjölmargir skíðamenn eiga ljúfar minningar frá leikunum og ekki er óalgengt að sjá fyrrum keppendur mæta brosandi með börnin sín á leikana. Flestir – ef ekki allir – af okkar bestu skíðamönnum hófu sinn keppnisferil einmitt á Andrésarleikunum.“