Fara í efni
Dvalarheimilin

Endurbætur vegna myglu loksins hafnar

Myndir: Skapti Hallgrímsson

Framkvæmdir við endurbætur á hjúkrunarheimilinu Hlíð eru loks hafnar en þar hafa 22 hjúkrunarrými af 30 í álmu 3 staðið auð síðan í byrjun árs 2023 eftir að mygla greindist í húsnæðinu. Mikill dráttur hefur orðið á nauðsynlegum úrbótum, með alvarlegum afleiðingum fyrir íbúa, starfsfólk og nærsamfélagið.

Þóra Sif Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Heilsuverndar hjúkrunarheimila, segir að reynt hafi verið að bregðast við vandanum með því að auka nýtingu í tímabundnum dvölum og notendum í dagþjálfun hefur fjölgað. Tvímennt er í ákveðinn fjölda herbergja þar sem aðstæður leyfa. Flytja hefur þurft starfsfólk og íbúa milli eininga vegna heilsufarslegra kvilla tengt lélegum loftgæðum. Við þetta bætist sívaxandi þörf fyrir hjúkrunarrými, biðlistar lengjast og aukið álag er á fjölskyldur.

Horft inn í tvö herbergjanna sem lengi hafa staðið auð á Hlíð.

Ljóst 2022 að aðgerða var þörf

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir ákvað að ganga til samninga við ÁK smíði ehf. um endurbæturnar. Tvö tilboð bárust í verkið og hljóðaði tilboð ÁK smíði ehf. upp á tæpar 656 milljónir króna en Trétak ehf. bauð rúmar 822 milljónir. Verklok eru áætluð vorið 2027.

Heilsuvernd ehf. tók við rekstri Öldrunarheimila Akureyrar af Akureyrarbæ þann 1. maí árið 2021 og skv. samningi um yfirtöku rekstrarins átti óháð úttekt að fara fram á húsnæði Hlíðar við Austurbyggð. Fyrstu niðurstöður sem bárust Heilsuvernd í september 2022 staðfestu heilsuspillandi myglu og ljóst að aðgerða var þörf. Áframhaldandi húsnæðisúttektir leiddu í ljós að mygla var mun víðar en fyrst var talið og ástandið því ennþá alvarlegra en álitið var.


Endurbótum átti að ljúka 2025

Miklar tafir urðu á ákvarðanatöku og áformum um endurbætur undanfarin misseri. Ríkið og Akureyrarbær deildu lengi um hver ætti að bera kostnaðinn vegna endurbótanna en þeim deilum lauk með samkomulagi í ágúst árið 2024 þess efnis að ríkið yfirtæki 85% af eignarhluta Akureyrarbæjar í húsnæðinu og myndi í staðinn fjármagna viðhalds- og endurbótaframkvæmdir á Hlíð fyrir allt að 1.250 milljónir króna. Þá var gert ráð fyrir að endurbótunum lyki að fullu fyrir árslok 2025. Þrátt fyrir þetta samkomulag er Akureyrarbær í dag skráður eigandi að húsnæðinu og ríkið stendur straum af öllum kostnaði vegna þess.

Þrátt fyrir að endurbætur séu loks hafnar í álmu 3 er staðan slæm víðar. Myndin er tekin í álmu 1 og úttektir hafa sýnt að farsælla sé að rífa hana en leggjast í viðgerðir.

Tvær álmur þyrfti að rífa

Í janúar 2025 bárust þær fréttir að framkvæmdum innanhúss í álmu 3 myndi seinka vegna útboðsskyldu á hönnunarvinnu. Hönnunarvinna hófst loks í september sl. haust og þá var stefnt að því að framkvæmdir gætu hafist í desember. Ekki gekk það eftir en núna er búið að ganga til samninga og langþráðar framkvæmdir eru hafnar.

Þrátt fyrir þær gleðifréttir að framkvæmdir séu að hefjast í álmu 3 þá er staðan í álmu 1 og 2 slæm. Úttektir hafa sýnt fram á að ekki borgi sig að gera upp húsnæðið heldur sé farsælla að rífa það og byggja nýtt sem stenst kröfur um aðbúnað á hjúkrunarheimili. Nýtt hjúkrunarheimili í Þursaholti mun þó ekki verða tilbúið til notkunar fyrr en í fyrsta lagi eftir 3 ár og óvíst er hvort hægt verði að fullnýta rýmin í álmu 1 fram að þeim tíma.

Tómlegt hefur verið á þessum gangi í álmu 3 undanfarin misseri.

Óásættanlegur aðbúnaður

Álma 2 hýsir í dag skrifstofur og þar segir Þóra að búið sé að fara í ákveðnar aðgerðir til að bæta loftgæði og vinnuaðstöðu. „En það hefur því miður ekki dugað til. Stór hluti starfsmanna á þeim gangi finnur fyrir heilsufarslegum einkennum tengt húsnæðinu,“ segir Þóra.

Þóra segir að starfsfólk Heilsuverndar hjúkrunarheimila hafi lagt mikla vinnu undanfarin ár í að halda starfseminni gangandi við óásættanlegan aðbúnað tengt húsnæðinu að Austurbyggð 17. „Við erum boðin og búin að leggja á okkur vinnu og leita leiða til að finna lausnir en það dugir ekki til þar sem við erum ekki eigendur húsnæðisins og höfum ekki umboð til framkvæmda. Okkar hlutverk er að þjónusta íbúa og notendur og sjá til þess að aðbúnaður starfsfólks sé í lagi. Það er óásættanlegt að þurfa að ýta sífellt á framkvæmdir og nauðsynlegt viðhald húsnæðisins,“ segir Þóra Sif Sigurðardóttir.

Fyrri fréttir akureyri.net um ástand húsnæðismála á Hlíð:

FLEIRI MYNDIR AF HLÍÐ HÉR AÐ NEÐAN

Langvarandi skortur á viðhaldi hefur sett mark sitt á húsakostinn á Hlíð.

Þóra Sif Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Heilsuverndar hjúkrunarheimila.

Þessi setustofa í álmu 1 er í fullri notkun.

Aðstaða fyrir ýmiss konar smíðavinnu og handverk sem var mikið notuð af heimilisfólki hefur verið ónothæf lengi.

Hér í álmu 3 eru endurbætur loks hafnar eftir langvarandi tafir.