Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Valur Helgi yfirlæknir, Arna aðstoðaryfirlæknir

Valur Helgi Kristinsson hefur verið fastráðinn yfirlæknir hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Akureyri og Arna Reynisdóttir hefur verið ráðin aðstoðaryfirlæknir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni í dag.
 
Í tilkynningunni segir um ráðninguna.
 
Valur Helgi Kristinsson hefur verið fastráðinn yfirlæknir hjá HSN á Akureyri í kjölfar auglýsingar um stöðuna. Hann hefur gegnt starfinu frá því í janúar 2026.
 
Valur er sérfræðingur í heimilislækningum. Hann lauk embættisprófi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 2000 og sérnámi í heimilislækningum á Húsavík og í Örebro í Svíþjóð árið 2007. Að námi loknu starfaði hann sem heimilislæknir í Lundi í Svíþjóð.
 
Valur þekkir HSN vel, en hann hefur starfað hjá heilsugæslunni á Akureyri frá árinu 2009, að undanskildu stuttu hléi árið 2024 þegar hann starfaði sem heimilis- og trúnaðarlæknir hjá Heilsuvernd.
 
Arna Reynisdóttir sérfræðingur í heimilislækningum hefur verið ráðin sem aðstoðaryfirlæknir hjá HSN á Akureyri. Arna hefur lokið tveimur árum í lyfjafræði frá Háskóla Íslands en ákvað þá að hefja nám í læknisfræði. Hún lauk námi í læknisfræði frá Debrecen í Ungverjalandi árið 2017 og flutti í kjölfarið heim til Akureyrar.
 
Hún varði sérnámsgrunnnámi (áður kandidatsnám) sínu á Sjúkrahúsinu á Akureyri og á HSN á Akureyri árin 2017 og 2018 og vann í kjölfarið í rúmt ár á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Arna hefur starfað hjá HSN á Akureyri frá árinu 2020.

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45