Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Þarftu að losna við jólatré og flugeldarusl?

Jólahátíðin styttist nú hratt í annan endann og fólk líklega almennt farið að huga að því að losa sig við jólatréð, hafi það verið lifandi í stofunni, ellegar pakka gervitrénu í kassa og koma fyrir í geymslunni á ný. Á vef Akureyrarbæjar er upplýst að gámum fyrir jólatré verður komið fyrir við verslanir Bónuss í Naustahverfi og Langholti.

„Um jól og áramót fellur yfirleitt til mikið af alls kyns úrgangi og rusli. Lifandi jólatrjám sem lokið hafa hlutverki sínu er mikilvægt að koma í endurvinnslu sem og flugeldarusli sem er engan veginn við hæfi að skilja eftir á víðavangi,“ segir á vef bæjarins.

Gámar fyrir flugeldarusl verða við sömu Bónus-verslanir en einnig við grenndarstöðina norðan við Ráðhús Akureyrarbæjar. 

„Íbúar bæjarins eru eindregið hvattir til að nota þessa gáma. Hjálpumst að við að hreinsa til eftir hátíðarnar og koma ruslinu rétta leið,“ segir í tilkynningunni frá bænum og athygli er vakin á því að flugeldarusl og jólatré verða ekki tekin við lóðamörk eins og starfsmenn bæjarins hafa einstaka sinnum gert.

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50

Hvað er gervigreind?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
04. nóvember 2023 | kl. 14:50