Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Segja ónæði og hávaða af leigubílastæðunum

Strandgata 3 til hægri. Svefnherbergisgluggar snúa beint út að leigubílastæðunum við Túngötu. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Íbúar í Strandgötu 3 hafa óskað eftir því við skipulagsráð að staðsetning leigubílastæða í Túngötu verði endurskoðuð. Í bréfi þar sem formaður húsfélagsins, Laufey Vilhjálmsdóttir Hjörvar, ber fram þessa ósk við skipulagsráð segir hún að síðan leigubílastæðin voru flutt í Túngötuna, til reynslu, hafi íbúar orðið fyrir verulegu ónæði, sérstaklega á kvöldin, um helgar og á nóttunni.

Á meðal þeirra athugasemda sem íbúarnir gera eru að þessu fylgi hávaði, öskur og læti frá fólki sem bíður eftir leigubílum, slagsmál, sóðaskapur og fólk sem kastar af sér þvagi utan í húsið. Leigubílar standi í gangi, leigubílstjórar standi gjarnan við bílana og spjalli á meðan þeir bíða eftir farþegum. Svefnherbergi í íbúðum snúa út að Túngötunni og ekki sé hægt að sofa við opinn glugga. Fólk vakni ítrekað við hávaða frá biðstæðunum.

Meirihluti skipulagsráðs fól skipulagsfulltrúa að hefja að nýju skoðun á framtíðarstaðsetningu leigubílastæða í miðbænum og ákvað að framlengja leyfið fyrir núverandi stæði til 1. desember. Þórhallur Jónsson A-lista greiddi atkvæði gegn þessari ákvörðun.

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45