Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Guðjón Hauksson er nýr forstjóri SAk

Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands, hefur verið skipaður forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri til næstu fimm ára. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Tilkynningin er svohljóðandi í heild:

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað Guðjón Hauksson í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri frá 1. júní næstkomandi til fimm ára. Embættið var auglýst laust til umsóknar 27. febrúar síðastliðinn. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við álit ráðgefandi hæfnisnefndar sem mat Guðjón hæfastan umsækjenda til að gegna embættinu.

Guðjón hefur víðtæka menntun og starfsreynslu á sviði heilbrigðismála og heilbrigðisþjónustu. Hann lauk B.S. prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands (HÍ) árið 2006, meistaragráðu frá Boston University School of Public Health á sviði rannsókna tengdum heilbrigðisþjónustu árið 2012 og meistaragráðu í heilsuhagfræði frá HÍ árið 2015.

Guðjón er forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands og hefur gegnt því embætti frá árinu 2017 en áður var hann deildarstjóri sjúkradeildar við sömu stofnun í fjögur ár. Hann hefur m.a. starfað sem sérfræðingur hjá Lyfjagreiðslunefnd, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu og sem verkefnastjóri og hjúkrunarfræðingur á Landspítala.

Eins og fram kemur í áliti hæfnisnefndar hefur Guðjón öðlast mjög breiða þekkingu á heilbrigðiskerfinu í störfum sínum. Sem forstjóri HSA í nærri áratug hefur hann einnig mikla þekkingu og reynslu af áætlanagerð og fjármálum hins opinbera og á sviði mannauðsmála og stjórnsýslu.

Embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands verður auglýst laust til umsóknar innan skamms.

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50