Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Lögreglan: Mikill erill – 83 mál, 13 handteknir

Handtökur fóru fram í umfangsmikilli lögregluaðgerð með aðstoð sérsveitarmanna í Glerárgötu í gærkvöld, í næsta nágrenni við Akureyrarvöll þar sem fjöldi manns var á tónleikum. Þetta kemur fram í frétt mbl.is núna í morgun. Mikill erill var hjá lögreglu að því er fram kemur í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra á Facebook-síðu embættisins í morgun. Alls voru 83 mál skráð hjá lögreglu síðastliðinn sólarhring. 

Samkvæmt frétt mbl.is stöðvaði lögregla för fólksbíls og mátti ráða af myndum að fjórir hafi verið handteknir. Í tilkynningu lögreglu um kl. 8 í morgun kemur fram að fjórir einstaklingar hafi verið handteknir vegna fíkniefnalagabrots, einn þeirra vistaður í fangageymslu og að málið sé til rannsóknar. Ekki er þó tekið fram að þær handtökur hafi farið fram í Glerárgötunni með aðstoð sérsveitarmanna, né heldur er sú aðgerð nefnd sérstaklega í tilkynningunni.

Helstu verkefni síðasta sólarhring hjá lögreglunni á Akureyri, samkvæmt tilkynningunni:

  • Átta mál komu upp vegna ölvunar eða vímuástands og þurftu tveir aðilar að gista í fangageymslu.
  • Fimm mál komu upp þar sem afskipti voru höfð af börnum vegna ástands, barnavernd og forendar upplýst.
  • Tíu umferðarlagabrot voru skráð síðastliðinn sólarhing hjá lögreglu, en ekkert tilfelli kom upp þar sem grunur var um akstur undir áhrifum vímugjafa.
  • Ein líkamsárás var tilkynnt og er það mál til rannsóknar.
  • Níu einstaklingar handteknir og einn þeirra og vistaður í fangageymslu vegna vopnalagabrots á tónleikasvæðinu á Akureyrarvelli, það mál einnig til rannsóknar.
  • Fjórir einstaklingar handteknir vegna fíkniefnalagabrots, einn þeirra vistaður í fangageymslu og málið til rannsóknar.

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45