Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Listi sjálfstæðismanna formlega samþykktur

Berglind Ósk Guðmundsson, sem skipar efst sæti lista sjálfstæðismanna, ásamt þremenningunum í heiðurssætunum. Frá vinstri: Njáll Trausti Friðbertsson, Berglind Ósk, Lára Halldóra Eiríksdóttir og Þórarinn B. Jónsson.

Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins á Akureyri samþykkti í morgun lista flokksins til sveitarstjórnakosninga þann 16. maí næstkomandi.

„Á listanum eru 22 einstaklingar með fjölbreyttan bakgrunn sem brenna fyrir því að halda áfram á þeirri vegferð sem Akureyri er á þar sem öll lífsgæði mynda grundvöll til sóknar,“ segir í tilkynningu frá fulltrúaráðinu.

„Við erum spennt fyrir því að halda áfram á þeim góða grunni sem byggður hefur verið á yfirstandandi kjörtímabili og hlökkum til að ganga til kosninga í vor með sterkan og samheldinn lista,“ segir Berglind Ósk Guðmundsdóttir, nýr oddviti flokksins og fyrrum alþingismaður, í tilkynningunni. „Listi okkar Sjálfstæðismanna endurspeglar breiða reynslu, ferskar hugmyndir og skýran vilja til að vinna Akureyri vel. Við erum þakklát fyrir þann meðbyr sem við finnum um þessar mundir og þá hvatningu sem við fáum frá Akureyringum. Fram undan er kraftmikil kosningabarátta þar sem við leggjum áherslu á öflugt atvinnulíf, áframhaldandi uppbyggingu, ábyrga fjármálastjórn og góða þjónustu við íbúa.“

Flokkurinn hélt röðunarfund í febrúar þar sem Sjálfstæðismenn kusu um fjögur efstu sætin. Þá bar kjörnefnd flokksins ábyrgð á því að fylla listann að því loknu. Listinn telst nú formlega samþykktur og er birtur hér með:

1. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrum alþingismaður

2. Heimir Örn Árnason, bæjarfulltrúi

3. Arna Rut Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri

4. Þórhallur Harðarson, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar

5. Þorsteinn Kristjánsson, frumkvöðull

6. Kristína Björk Arnórsdóttir, persónuverndarfulltrúi

7. Jóhann Gunnar Kristjánsson, verkefnastjóri

8. Jóhanna Hlín Ragnarsdóttir, hárgreiðslumeistari

9. Freydís Lilja Þormóðsdóttir, nemi

10. Kristinn Frímann Árnason, hafnarvörður

11. Dagný Reykjalín Ragnarsdóttir, grafískur hönnuður

12. Fannar Gíslason, verkfræðingur

13. Elín Birna Gunnlaugsdóttir, nemi

14. Davíð Þ. Kristjánsson, athafnamaður

15. Sara Halldórsdóttir, lögfræðingur

16. Jósavin Heiðmann Arason, húsasmiður

17. Kristín Elva Viðarsdóttir, skólasálfræðingur

18 Ísak Svavarsson, húsasmiður og flugnemi

19. Ólöf Heiða Óskarsdóttir, viðskiptastjóri

20. Þórarinn B. Jónsson, fyrrum bæjarfulltrúi

21. Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður og fyrrum bæjarfulltrúi

22. Lára Halldóra Eiríksdóttir, bæjarfulltrúi

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50

Hvað er gervigreind?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
04. nóvember 2023 | kl. 14:50