Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Listasafnið fær fimm verk eftir Kristínu að gjöf

Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona. Mynd: Listasafnið á Akureyri/Sigríður Marrow.

Listasafnið á Akureyri hefur fengið fimm ný verk eftir listakonuna Kristínu Gunnlaugsdóttur í safneign sína. Eitt verkanna var gjöf frá listakonunni sjálfri en fjögur komu frá einkaaðilum. Með viðbótinni styrkist safneignin verulega og gefur nú heildstæðari mynd af löngum og fjölbreyttum ferli hennar.

Í tilefni af nýju verkunum var opnuð sýning með verkum Kristínar úr safneign safnsins á alþjóðlega safnadeginum, 18. maí sl. Yfirskrift dagsins í ár var Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi og var meðal annars lögð áhersla á hlutverk kvenna, seiglu og samkennd í samfélaginu.

Sjálfsmynd listakonunnar frá 1988, 60x80 cm; verkið sem Kristín færði Listasafninu á Akureyri að gjöf nýverið.

Kristín Gunnlaugsdóttir fæddist á Akureyri árið 1963 og hefur starfað að myndlist frá útskrift. Hún nam við Myndlistaskólann á Akureyri og Myndlista- og handíðaskóla Íslands, auk þess sem hún lagði stund á íkonagerð í Róm og lauk framhaldsnámi frá Accademia di Belle Arti í Flórens árið 1994. Verk hennar byggja á sterkri tengingu við klassíska málaralist en einkennast jafnframt af fjölbreyttum efnistökum og aðferðum. Hún hefur meðal annars unnið með olíu og eggtemperu með blaðgulli, auk kola og útsaums.

Fyrir átti safnið þrjú verk eftir Kristínu, öll frá ákveðnu tímabili á tíunda áratugnum. Með nýju verkunum fæst víðari sýn á þróun listsköpunar hennar, þar sem verk frá ólíkum tímabilum og með mismunandi áherslum endurspegla fjölbreytileika ferilsins. Verkin spanna allt frá klassískum og fígúratívum myndheimum yfir í nýrri og óhlutbundnari nálganir. Þrátt fyrir fjölbreytileikann bera þau skýr höfundareinkenni þar sem táknrænt myndmál og samtímaleg efnistök mætast.

Með þessum nýju aðföngum telja forsvarsmenn safnsins að það verði betur í stakk búið til að miðla sérstöðu og þróun í verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur og staðsetja framlag hennar í samhengi íslenskrar samtímalistar.

Sýningin með verkum Kristínar er í sal 12 á Listasafninu og stendur til 6. september 2026.

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50