Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Línur að skýrast á Íslandsmótinu í golfi

Þrjú úr GA á Korpúlfsstaðavelli, frá vinstri: Barri Björgvinsson, Andrea Ýr Ásmundsdóttir og Veigar Heiðarsson. Myndir: GSÍ

Sex af þrettán kylfingum frá Golfklúbbi Akureyrar (GA) sem hófu leik á Íslandsmótinu í höggleik á fimmtudag komust gegnum niðurskurðinn eftir annan keppnisdag í gær og léku þriðja hringinn í dag. Þrátt fyrir ágæt tilþrif náði enginn þeirra að gera atlögu að efstu kylfingum, sem eru reyndar í dálitlum sérflokki á þessu móti.

Í kvennaflokki komust 22 keppendur gegnum niðurskurðinn og Andrea Ýr Ásmundsdóttir og Lilja Maren Jónsdóttir úr GA voru þar á meðal. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili hefur þriggja högga forystu fyrir lokadaginn á morgun og þær Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni og Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur koma þar á eftir. Langt er í næstu keppendur og varla nokkur sem ógnar þessum þremur efstu.

Andrea Ýr Ásmundsdóttir slær á Korpúlfsstaðavelli. Hún lék á 77 höggum í dag og er í 11. sæti fyrir síðasta dag mótsins ásamt þremur öðrum, m.a. Lilju Maren Jónsdóttur úr GA. Mynd: GSÍ

Skor og staða hjá GA-keppendum í kvennaflokki eftir þrjá keppnisdaga:

  • Lilja Maren Jónsdóttir lék á 81 höggi í dag og er jöfn Andreu Ýri og þremur öðrum í 11. sæti á samtals 232 höggum
  • Andrea Ýr Ásmundsdóttir lék á 77 höggum í dag og er jöfn Lilju Maren og þremur öðrum í 11. sæti á 232 höggum

Í karlaflokki komst 51 kylfingur gegnum niðurskurðinn og þar af fjórir úr GA. Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er ennþá í sérflokki á mótinu. Hann hefur leikið á 203 höggum og hefur sex högga forystu fyrir lokadaginn.

Veigar Heiðarsson slær á Korpúlfsstaðavelli. Hann fór hringinn á 71 höggi í dag og er í 12. sæti fyrir lokadaginn. Mynd: GSÍ

Skor og staða hjá GA-keppendum í karlaflokki eftir þrjá keppnisdaga:

  • Veigar Heiðarsson lék á 71 höggi í dag og er í 12. sæti á  218 höggum samtals
  • Barri Björgvinsson lék á 73 höggum í dag og er jafn átta öðrum í 14. sæti á 220 höggum samtals
  • Mikael Máni Sigurðsson lék á 76 höggum í dag og er jafn einum öðrum í 40. sæti á 226 höggum samtals
  • Ágúst Már Þorvaldsson lék á 78 höggum í dag og í 47. sæti á 229 höggum samtals

Veigar Heiðarsson lék vel lengi framan af í dag og var kominn 4 högg undir par á hringnum. Hann tapaði þeim hins vegar aftur á síðustu fjórum holunum og endaði á parinu.

Síðasti keppnisdagur er á morgun og þá ræðst hver verða Íslandsmeistarar en óneitanlega eru þau Dagbjartur og Guðrún Brá líkleg til að verja titla sína frá í fyrra. Fylgjast má með stöðunni í mótinu í rauntíma á þessari síðu og RUV mun einnig sýna beint frá mótinu síðdegis á morgun, allt til loka.

Barri Björgvinsson úr Golfklúbbi Akureyrar er aðeins 15 ára en er jafn átta öðrum í 14. sæti á 220 höggum samtals. Hér undirbýr hann pútt á Korpúlfsstaðavelli. Mynd. GSÍ

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45