KA-Fram í Bestu í dag, bílar, golf og hjólreiðar
KA á heimaleik í Bestu deild karla í dag, en að öðru leyti einkennist vikan fram undan ekki af knattspyrnuleikjum. Seinni hluta vikunnar stendur Bílaklúbbur Akureyrar fyrir hinum árlegu Bíladögum. Hjólreiðafólk verður einnig í sviðsljósinu um komandi helgi, Íslandsmeistaramót í þremur greinum á Akureyri og í Eyjafirði á dagskránni. Þá verður hið árlega miðnæturgolfmót Arcit Open einnig á dagskrá, en keppni hefst á fimmtudag. Fótboltinn tekur svo aftur við síðdegis á sunnudag, 21. júní, en þá eiga karlaliðin á Akureyri bæði útileik.
MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ - fótbolti
KA tekur á móti Fram í 10. umferð Bestu deildar karla í dag, mánudag. Að loknum níu umferðum er KA í 8. sæti deildarinnar með tíu stig, en Fram er í toppbaráttunni, situr í 3. sætinu með 20 stig. Fyrir landsleikjahléið mátti KA þola 5-3 tap fyrir KR á útivelli, en Fram vann Breiðablik 4-3. Markaleikir hjá báðum liðum og spurning hverju áhorfendur mega eiga von á þegar liðin mætast í dag.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 10. umferð
KA-völlur (Greifavöllurinn sunnan við KA-heimilið – gervigras) kl. 18
KA - Fram
KA vann allar viðureignirnar þessara liða í deildinni í fyrra, fyrst 2-1 þegar liðin mættust á heimavelli Fram í lok maí í fyrra og svo 2-0 á Akureyri í ágúst. Þriðji leikur þessara liða var svo í keppni neðri hlutans þar sem KA vann 4-1 á útivelli í lokaumferðinni. Þar með er ekki öll sagan sögð því KA og Fram mættust einnig í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar og þar hafði Fram betur, 4-2, í leik sem fram fór á Akureyri.
MIÐVIKUDAGUR TIL LAUGARDAGS, 17.-20. JÚNÍ - Bíladagar
Bílaklúbbur Akureyrar stendur fyrir hinum árlegu Bíladögum, sem að þessu sinni hefjast miðvikudaginn 17. júní og standa fram á laugardaginn 20. júní.
Helstu dagskrárliðir:
- 17. júní
Bílasýning í Boganum kl. 10-18
Audio og AF bílagræjur við Bogann kl. 14-16
Auto-x kl. 20:00–22:00 - 18. júní
Driftkeppni kl. 10-17
Vegasalt kl. 20 og bílalimbó kl. 21 - 19. júní
Sandspyrna kl. 11:00-15:45
Hávaðakeppni kl. 21 - 20. júní
Götuspyrna kl. 12:30-19:00
„Burn out“ kl. 20:30 - Dagskrá og upplýsingar um Bíladaga má finna á vef Bílaklúbbs Akureyrar og Facebook-síðu Bíladaga.
Siðareglur Bíladaga:
- Við göngum og keyrum vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn.
- Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti.
- Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
- Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir.
- Við berum virðingu fyrir náunganum og gerum Bíladaga frábæra.
- Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt.
FIMMTUDAGUR TIL LAUGARDAGS, 18.-20. JÚNÍ - Arctic Open golfmótið
Hið árlega alþjóðlega golfmót Arctic Open hefst á fimmtudag og stendur fram á laugardag. Þar er keppt í opnum flokki, með og án forgjafar, en mótið er þekkt og vinsælt fyrir miðnæturgolf. Spilaðar eru 18 holur hvorn keppnisdag, 18. og 19. júní, en mótinu lýkur með lokahófi á laugardag. Mótið hefur verið haldið árlega frá árinu 1986, fyrstu 16 árin aðeins í karlaflokki, en í kvennaflokki einnig frá 2002. Upplýsingar um mótið má finna á mótssíðunni á vef Golfklúbbs Akureyrar.
- 18. júní
Opnunarhátið, setning Arctic Open kl. 10:30
Fyrsti rástími kl. 11 - 19. júní
Ræst út kl. 10 - 20. júní
Lokahóf Arctic Open kl. 19.
FÖSTUDAGUR TIL SUNNUDAGS, 19.-21. JÚNÍ - Íslandsmeistaramót í þremur greinum hjólreiða
Upplýsingar um hjólreiðaviðburðina má finna á vef Hjólreiðasambands Íslands og á Facebook-síðu Hjólreiðafélagsins.
- Hjólreiðasamband Íslands
- Íslandsmeistaramót í tímaþraut
- Íslandsmeistaramót í götuhjólreiðum
- Íslandsmeistaramót í criterium
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ - hjólreiðar
Íslandsmeistaramót í tímatöku í hjólreiðum fer fram í Eyjafjarðarsveit á föstudag og er rásmark og endamark við Botnsreit. Hjólað er um 1,5 kílómetra í suðurátt, inn fjörðinn frá Hrafnagili. Ræsing og endamark í öllum flokkum er á sama stað, en mismunandi snúningspunktar eftir flokkum. Leiðina má finna á Strava - sjá hér.
Vegalengdir eru 15, 20 og 28 kílómetrar. Keppni hefst kl. 18.
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ - hjólreiðar
Íslandsmeistaramótið í götuhjólreiðum fer fram í Svarfaðardal á laugardag. Ræsing er við Víkurröst á Dalvík og fylgja keppendur rásbíl þaðan inn á hringinn sunnan megin í Svarfaðardal. Þaðan er hjólað réttsælis um hringinn. Skipuleggjandi mótsins er Hjólreiðafélag Akureyrar. Keppni hefst kl. 10.
- Elite-flokkur karla - sex hringir - 140,4 km
- Elite-flokkur kvenna - fjórir hringir - 117 km
- U19 flokkur karla - fjórir hringir - 93 km
- U19 flokkur kvenna - þrír hringir - 70 km
SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ - hjólreiðar
Götuhjólreiðahelgi Hjólreiðafélags Akureyrar lýkur með Criterium-keppni á um tveggja kílómetra löngum hring á Akureyri. Criterium-keppni fer þannig fram að brautin er hjóluð í fyrirfram ákveðinn tíma, en þegar tíminn er liðinn hjóla allir keppendur einn hring til viðbótar, svokallaðan bjölluhring.
- Íslandsmeistaramót í Criterium kl. 10
Ræst er í U-flokkum kl. 10, A- og B-flokkum kvenna kl. 11 og A-flokki karla kl. 12. Í kvenna- og karlaflokki er hjólað í klukkutíma, auk bjölluhrings, en í 45 mínútur í U-flokkunum. Hjólað er um Goðanes og Baldursnes. Hringurinn er 2,17 kílómetrar.

SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ - fótbolti
Bæði karlalið Akureyrar í knattspyrnunni eiga leik sunnudaginn 21. júní. Þór sækir FH heim á Kaplakrikavöll í Hafnarfirði og KA sækir Breiðablik heim á Kópavogsvöll. Tveir leikir gegn liðum á suðvesturhorninu, tveimur af örfáum liðum á landinu sem ekki hafa selt nafnið á sínum heimavelli.
Leikir dagsins eru liður í 11. umferð mótsins, þeirri síðustu í fyrri hluta hinnar hefðbundnu deildarkeppni.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 11. umferð
Kaplakrikavöllur í Hafnarfirði kl. 18
FH - Þór - Besta deild karla í knattspyrnu, 11. umferð
Kópavogsöllur kl. 18
Breiðablik - KA
Að lesa um afa
Innflytjendur, samningar og staðreyndir
Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“
Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?