Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Harma skyndilegt brotthvarf Hildigunnar

Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, og Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, þegar ráðherra kom í heimsókn í nóvember á síðasta ári. Mynd: sak.is.

Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) harmar skyndilegt brotthvarf Hildigunnar Svavarsdóttur, fyrrverandi forstjóra stofnunarinnar og álítur  að farsælast hefði verið að hún sæti áfram. Þetta kemur fram í ályktun fagráðsins.

Skipunartími Hildigunnar átti að renna út 31. ágúst næstkomandi en þegar Alma Möller, heilbrigðisráðherra, tilkynnti að starfið yrði laust til umsóknar að loknum fimm ára skipunartíma Hildigunnar óskaði forstjórinn eftir að láta af störfum.

Ályktun fagráðs SAk er svohljóðandi:

Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri ályktar um brotthvarf Hildigunnar Svavarsdóttur fyrrverandi forstjóra SAk. Fagráð harmar hið skyndilega brotthvarf Hildigunnar úr starfi forstjóra og álítur að farsælast hefði verið að hún hefði setið áfram. Starfsemi Sjúkrahússins hefur verið að ganga í gegnum viðkvæmt tímabil af ýmsum orsökum t.d. vegna kröfu ráðuneytis að segja upp ferliverkum lækna, myglu í húsnæði og aðstöðu margra deilda sem krefjast flutninga flókins búnaðar og starfsemi ásamt mikilli úrbótavinnu, áskorana tengdum nýjum kjarasamningum lækna, mönnunarvanda lækna, hjúkrunarfræðinga og fleiri heilbrigðisstétta og skorts á fjármögnun í takt við verkefni. Eðlilegra hefði verið að halda stöðugleika í yfirstjórn við þessar aðstæður. Fagráð SAk þakkar Hildigunni fyrir vel unnin störf og samstarf á undanförnum árum.

  • Frétt akureyri.net 16. febrúar:

Hildigunnur hættir í dag sem forstjóri SAk

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50

Hvað er gervigreind?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
04. nóvember 2023 | kl. 14:50