Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Gjörningahátíðin A! fór um víðan völl

Sunneva Kjartansdóttir kom fram á A! Gjörningahátíð! Mynd: Listak

A! Gjörningahátíð var haldin um síðustu helgi. Fjölbreyttir viðburðir hátíðarinnar dreifðust um Listasafnið á Akureyri, Hof, Deigluna og Mjólkurbúðina. Gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga voru á dagskránni, segir í fréttatilkynningu frá Listasafninu. Hátíðin er árlegur viðburður og var þetta í ellefta sinn sem hún er haldin.

Samhliða var haldin gjörningasmiðja fyrir ungmenni á aldrinum 12-18 ára í umsjón Arnar Alexanders Ámundasonar þar sem saga gjörningalistar var skoðuð og gerðar spennandi tilraunir með miðilinn.

23 alþjóðlegir listamenn tóku þátt og komu frá Noregi, Finnlandi, Hollandi, Króatíu og Íslandi. Þátttakendur voru Árni Vil og Lísandra Týra Jónsdóttir, Marte Dahl, Áki Frostason og Andro Manzoni, Sunneva Kjartansdóttir, Ari Logn, Tianjun Li (Timjune), Drengurinn Fengurinn, Linde Rongen og Eydís Rose Vilmundardóttir, Fríða Katrín Bessadóttir, Hildur Elísa Jónsdóttir, Alysse Bowd, Kjersti Austdal, Tjátiljurnar.

Hátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Gilfélagsins, Myndlistarfélagsins á Akureyri, Listnámsbrautar VMA og Akureyrarbæjar. A! verður næst haldin 8.-10. október 2026.


Myndir frá hátíðinni, aðsendar frá Listasafninu á Akureyri:

Áki Frostason og Andro Manzoni

Alysse Boyd

Árni Vil og Lísandra Týra Jónsdóttir

Drengurinn Fengurinn

Fríða Katrín Bessadóttir

Gjörningavinnustofa í umsjón Arnar Alexanders Ámundasonar

Hildur Elísa Jónsdóttir

Kjersti Austdal

Linde Rongen og Eydís Rose Vilmundardóttir

Marte Dahl

Tianjun Li

Tátiljurnar

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50

Hvað er gervigreind?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
04. nóvember 2023 | kl. 14:50