Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Konudagur: Sigur eða sumarfrí hjá KA/Þór

Fjórir leikir kvennaliða í fjórum íþróttagreinum á dagskrá dagsins, handbolti í KA-heimilinu kl. 18, körfubolti fyrir sunnan kl. 18, fótbolti í Boganum kl. 18 og blak í KA-heimilinu kl. 20. Úrslitakeppni á dagskránni í handbolta, körfubolta og blaki kvenna, ásamt lokaleik kvennadeildar Kjarnafæðimótsins í knattspyrnu.

KA/Þór þarf sigur eftir naumt tap í fyrsta leik

KA/Þór mætir Haukum öðru sinni í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handbolta í dag, miðvikudag. Haukar unnu fyrstu viðureign liðanna með þriggja marka mun, 27-24, í Hafnarfirðinum á laugardag. KA/Þór verður því að vinna í dag til að tryggja sér oddaleik í Hafnarfirði á laugardag og eiga möguleika á að komast í undanúrslit.

  • Olísdeild kvenna í handbolta
    Úrslitakeppni, 1. umferð, leikur 2
    KA-heimilið kl. 18
    KA/Þór - Haukar
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Það lið sem vinnur tvo leiki fer áfram í undanúrslit.

Þór fær tækifæri til að jafna viðureignina

Önnur viðureign Þórs og Fjölnis verður í dag í Grafarvoginum. Þór endaði ofar í deildinni og byrjaði því á heimaleik á sunnudag, en tapaði honum með níu stiga mun, 71-80.

  • Bónusdeild/1. deild kvenna í körfubolta
    Umspil, undanúrslit, leikur 2
    Dalhús í Grafarvogi kl. 18
    Fjölnir - Þór
  • Útsending: KKÍ TV á Sýn
    Áskriftarsjónvarp

Vinna þarf þrjá leiki til að fara áfram í úrslitaviðureign gegn Hamri/Þór eða Selfossi um sæti í Bónusdeildinni. Þriðji leikur liðanna verður á Akureyri á annan í páskum.

Innanfélagsleikur hjá Þór/KA í Kjarnafæðimótinu

Lokaleikur kvennadeildar Kjarnafæðimótsins í knattspyrnu er á dagskrá í dag og í raun úrslitaleikur þar sem liðin sem mætast eru í tveimur efstu sætum mótsins. Það eru tvö lið frá Þór/KA.

  • Kjarnafæðimótið í knattspyrnu, kvennadeild
    Boginn kl. 18
    Þór/KA - Þór/KA2

Úrslitakeppnin í blaki að byrja

Fjögur efstu liðin í Unbroken-deild kvenna í blaki hefja úrslitakeppni deildarinnar á miðvikudag. KA endaði í 2. sæti deildarinnar og mætir Völsungi í undanúrslitum, en Húsvíkingar enduðu í 3. sætinu. Hin viðureign undanúrslitanna er á milli HK og Aftureldingar.

  • Unbroken-deild kvenna í blaki
    Undanúrslit, leikur 1
    KA-heimilið kl. 20
    KA - Völsungur

Vinna þarf tvo leiki til að komast áfram í úrslitin. Annar leikur liðanna verður á Húsavík á annan í páskum.

KA og Völsungur mættust fjórum sinnum í deildinni í vetur og vann KA allar viðureignirnar, 3-1 á Húsavík í október, 3-0 á Húsavík í nóvember, 3-0 á Akureyri í febrúar og 3-1 á Akureyri í mars.