Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Þunnskipað Þórslið tapaði fyrir Fjölni

Stigahæstar í sínum liðum, Leilani Kapinus með 35 stig fyrir Fjölni og Chloe Wilson 21 fyrir Þór, en hún fór af velli með fimm villur þegar þrjár og hálf mínúta var eftir. Myndin er úr leik liðanna í deildinni fyrr í vetur. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Fámennt lið Þórs varð að játa sig sigrað í fyrsta leik sínum gegn Fjölni í umspili Bónusdeildar og 1. deildar kvenna í körfubolta í dag. Munurinn var níu stig þegar upp var staðið, 71-80. 

Þórsliðið náði 8-2 forystu í upphafi leiks, en gestirnir jöfnuðu og sigu fram úr, munurinn fjögur stig þeim í hag eftir fyrsta leikhlutann. Upphaf annars leikhluta gaf ekki góð fyrirheit um framhaldið, Fjölnir skoraði 11 fyrstu stigin og munurinn orðinn 15 stig. En þá kom gott áhlaup Þórs á móti og annar leikhlutinn endaði jafn, 15-15, þannig að munurinn var áfram fjögur stig eftir fyrri hálfleikinn.

Eftir að Þór minnkaði muninn í tvö stig snemma í seinni hálfleiknum náði Fjölnir aftur góðum tökum á leiknum í seinni hálfleiknum og hélt forystunni í kringum tíu stigin lengst af. 

Þórsliðið var þunnskipað í dag, aðeins sex leikmenn á skýrslu og það hafði klárlega áhrif á gang leiksins. Fjölnisliðið mætti með fullskipaðan hóp og náði að nýta fjöldann vel, hvíla lykilleikmenn þegar þurfti og nýta orkuna í að pressa af krafti á Þórsliðið. Þegar leið á seinni hálfleikinn var orðið nokkuð ljóst hver niðurstaðan yrði og ekki skánaði staða Þórsliðsins þegar atkvæðamesti leikmaður liðsins, Chloe Wilson, fékk sína fimmtu villu þegar þrjár og hálf mínúta lifðu leiks. Segja má að þar með hafi úrslitin verið ráðin.

Þrátt fyrir brotthvarfið var Chloe stigahærst í Þórsliðinu með 21 stig, en Emma Karólína Snæbjarnardóttir kom næst með 20 stig.

Leilani Kapinus var að vanda atkvæðamest í Fjölnisliðinu, skoraði 35 stig, tók 15 fráköst og átti sex stoðsendingar. 

Þór - Fjölnir (16-20) (15-15) 31-35 (17-22) (23-23) 71-80

Helstu tölur leikmanna Þórs, stig/fráköst/stoðsendingar:

  • Chloe Wilson 27/12/1 - 22 framlagspunktar
  • Emma Karólína Snæbjarnardóttir 20/6/4
  • Yvette Adriaans 16/9/2
  • Emilie Ravn 8/6/2
  • Sigurlaug Eva Jónasdóttir 6/3/1
  • Karen Lind Helgadóttir 0/4/2

Tölfræði leiksins

Annar leikur liðanna verður í Dalhúsum í Grafarvogi miðvikudaginn 1. apríl kl. 18. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitaviðureign gegn Hamri/Þór eða Selfossi um laust sæti í Bónusdeildinni. Þriðji leikur liðanna verður á Akureyri á annan í páskum.

Emma Karólína Snæbjarnardóttir í Fjölnissamloku í leik liðanna í deildinni fyrr í vetur. Þessar þrjár voru allar valdar í lið ársins í 1. deildinni sem tilkynnt var á verðlaunahófi KKÍ í vikunni, Aðalheiður María Davíðsdóttir (21), Emma Karólína og Hulda Ósk Bergsteinsdóttir (7), sem lék reyndar með Þór fyrir tveimur árum. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Fjórar úr liði ársins í leik dagsins

Lið ársins í 1. deildinni, skipað innlendum leikmönnum, var tilkynnt á verðlaunahófi KKÍ núna í vikunni. Fjórar af fimm sem valdar voru í lið ársins voru á vellinum í leiknum í dag; Þórsarinn Emma Karólína Snæbjarnardóttir og þjár úr liði Fjölnis, Hulda Ósk Bergsteinsdóttir, Aðalheiður María Davíðsdóttir og Arna Rún Eyþórsdóttir. Emma var jafnframt valin leikmaður ársins í 1. deildinni.

Emma var jöfn Önnu Soffíu Lárusdóttur úr Snæfelli í stigaskori í deildinni í vetur, báðar með 331 stig og stigahæstar íslenskra leikmanna. Anna Soffía er sú fimmta í liði ársins. Emma var í 13. sæti yfir fjölda stoðsendinga og þriðja hæst íslenskra leikmanna

Helstu tölur Emmu í deildinni í vetur, meðaltal í leik:

  • Spilaðar mínútur 31:30
  • Stig: 19,47
  • Fráköst: 6,2
  • Stoðsendingar: 4,1

Emma Karólína Snæbjarnardóttir í deildarleik Þórs og Fjölnis á Akureyri fyrr í vetur. Lengst til hægri er Iho Lopez, sem nú er ekki lengur körfuboltakona hjá Þór heldur flugstjóri og komin í draumastarf á þeim vettvangi.

Hávaxni framherjinn floginn á braut

Áhugafólk um Þórsliðið hefur tekið eftir því að Iho Lopez, hávaxni framherjinn í Þórsliðinu, hefur ekki verið með liðinu í síðustu leikjum. Ástæðan er reyndar mjög áhugaverð því hún fékk tilboð um draumastarf sem hún gat ekki neitað og fékk sig því lausa frá Þór. Starfið tengist reyndar ekki körfubolta því Iho er flugstjóri og er flogin á brott úr íslenskum körfubolta.