Ágúst Elí frábær og KA í undanúrslit
KA-menn eru komnir í undanúrslit Íslandsmótsins í handbolta eftir 25:24 sigur á Vestmannaeyingum í KA-heimilinu í dag, sunnudag. Ágúst Elí Björgvinsson var frábær í markinu; hann lagði grunninn að sigri með stórbrotinni frammistöðu en hornamaðurinn Dagur Gautason rak smiðshöggið á gott dagsverk liðsins þegar hann gerði sigurmarkið úr mjög þröngu færi þegar 10 sekúndur voru eftir.
Tvo sigra þurfti til að komast áfram úr átta liða úrslitunum og KA-strákarnir unnu tvíframlengdan leik í Eyjum á fimmtudaginn. Þótt eyjan sé fögur höfðu þeir engan áhuga á að gera sér ferð þangað aftur í bráð – af augljósum ástæðum.

Sigurmarkið! Dagur Gautason horfir á eftir boltanum á leið í markið þegar 10 sekúndur voru eftir af leiknum. Bjarni Ófeigur Valdimarsson, lengst til vinstri á myndinni, sendi út í hornið á Dag sem stökk inn í teiginn úr mjög þröngufæri. Mynd: Ármann Hinrik
KA mætir Val í undanúrslitum, það varð ljóst eftir að Valsmenn unnu HK öðru sinni í dag. Fyrsta viðureign liðanna verður í Valsheimilinu að Hlíðarenda eftir rúma viku, á öðrum degi páska – mánudaginn 6. apríl.
Ágúst Elí varði ekki skot fyrr en 10 og hálf mínúta var liðin; staðan þá 5:4 fyrir ÍBV, en það sem eftir var hálfleiksins varði KA-maðurinn 10 af þeim 15 skotum sem hittu á markið! Tölfræði hans í fyrri hálfleik: 10 skot varin af 20, þar af voru tvö vítaköst og í leiknum varði Ágúst Elí þrjú af þeim sex vítum sem Eyjamenn fengu.
Í seinni hálfleik varði hann níu skot af 22 og þegar leikurinn var gerður upp kom í ljós að hann varði 45,2% þeirra skota Eyjamanna sem hittu á markrammann.
Nú til dags þykir ekki sérlega mikið að skoruð séu 49 mörk í handboltaleik en viðureignin var þrátt fyrir það bráðskemmtileg. Mikill hraði á köflum með tilheyrandi mistökum, átök þar sem varnarjaxlar á borð við KA-manninn Daníel Matthíasson fengu að njóta sín; menn sem eru sjaldnast áberandi í umfjöllum en leika engu að síður afar mikilvægt hlutverk, og liðin eru bæði gædd þeim eiginlega að gefast aldrei upp fyrr en í fulla hnefana.

Gullvarsla á ögurstundu! Tvær mínútur og 40 sekúndur voru eftir þegar ÍBV víti, Hákon Daði Styrmisson skaut en Ágúst Elí Björgvinsson varði. Myndir: Ármann Hinrik
KA hafði tvegga marka forystu í hálfleik, 13:11, eftir kaflaskiptan leikhluta. Þegar staðan var 3:2 fyrir KA gerðu gestirnir þrjú mörk í röð (3:5), síðan kom þriggja marka kafli heimamanna (6:5) og ekki leið á löngu þar sem Eyjamenn voru aftur komnir tveimur mörkum yfir 10:8.
Einar Birgir Stefánsson gerði fyrsta mark seinni hálfleiks af línunni (14:11), ÍBV skoraði svo úr víti en þrjú KA-mörk í röð breyttu stöðunni í 17:12. Þá voru sex mín. liðnar og útlit fyrir KA myndi valta yfir gestina. Svo fór þó ekki, Eyjamenn kunna ekki að gefast upp; þjálfari þeirra tók leikhlé í stöðunni 18:13, ákvað að láta einn leika mjög framarlega í vörninni og bað sína menn að sýna hugrekki. Þeir gegndu svo sannarlega og á næstu 10 mínútum gerði ÍBV sjö mörk en KA-strákarnir tvö. Staðan þá orðin 20:20, þá tók KA-liðið kipp og komst tveimur mörkum yfir en ÍBV jafnaði enn.
Áður var minnst á framlag Ágústs Elís, hann datt úr stuði á kafla í seinni hálfleik en komst aftur í ham á lokasprettinum. Þegar tæplega tvær og hálf mín. var eftir og staðan 24:24 fékk ÍBV víti og Ágúst varði skot Hákons Daða Styrmissonar. KA missti boltann í næstu sókn og þegar 19 sek. voru eftir fór Nökkvi Snær Eyjamaður óáreittur inn úr vinstri horninu en enn kom Ágúst Elí í veg fyrir að gestirnir kæmust yfir. Varði skot Nökkva úr dauðafæri. Andri Snær þjálfari KA tók leikhlé, lögð voru á ráðin og þegar 10 sek. voru eftir skoraði Dagur Gautason sigurmarkið sem fyrr segir. Eyjamenn brunuðu fram og Ágúst Elí varði lokaskotið frá Degi Arnarssyni frá punktalínu, nema hvað!


Lokaskotið: Dagur Arnarsson (7) reynir að jafna en skotið var slakt og Ágúst Elí varði auðveldlega. Myndir: Ármann Hinrik
Vörn og markvarsla áttu drjúgan þátt í sigri KA að þessu sinni. Skot utan af velli hafa oft verið betri en aðdáunarvert var hinsvegar hvað útileikmennirnir voru iðnir við að senda inn á línu sem skilaði sér. Ágúst Elí og Dagur Gautason voru nefndir í upphafi. Þeir félagar gengu báðir liðs við KA í vetur og byrjuðu að spila í byrjun febrúar, eftir EM-hléið langa; Ágúst Elí kom frá Svíþjóð og Dagur sneri heim frá Noregi, og báðir styrkja lið KA verulega. Þeir eru svo sannarlega þyngdar sinnar virði í gulli.
Mörk KA: Dagur Gautason 5, Einar Birgir Stefánsson 5, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 4, Einar Rafn Eiðsson 3 (þar af 2 víti), Morten Linder 3, Jens Bragi Bergþórsson 2, Magnús Dagur Jónatansson 2, Arnór Ísak Haddsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 19, þar af 3 víti (45,2%).
Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 6 (þar af 1 víti), Elís Þór Aðalsteinsson 5, Hákon Daði Styrmisson 5 (þar af 2 víti), Anton Frans Sigurðsson 3, Sigtryggur Daði Rúnarsson 2, Daníel Þór Ingason 1, Róbert Sigurðarson 1, Sveinn José Rivera 1.
Varin skot: Petar Jokanovic 5 (23,8%) – Morgan Goði Garner 4, þar af 1 víti (36,4%).